Framsókn. Utanríkis og varnarmál ekki á dagskrá ?

Ég hef aðeins verið að gefa því auga undanfarna daga hvað Framsóknarflokkurinn hefur fram að færa í utanríkis og varnarmálum. Meðan Halldór Ásgrímsson var formaður flokksins var hann bara nokkuð frjálslyndur og talaði fyrir skoðun á Evrópumálum og jafnvel taldi þáverandi formaður flokksins koma til greina að sækja um aðild. Að vísu var varaformaðurinn á öðru máli enda sjóndeildarhringur hans bundinn við Suðurlandsundirlendið og ekki hægt að ætlast til þess að hann talaði í þeim anda. Sennilega stafaði þessi skilningur Halldórs þáverandi formanns af veru hans í stól utanríkisráðherra.

En nú kveður við annan tón. Ekkert minnst á Evrópu á flokksþinginu nýafstaðna og varnarmál landsins ekki stafkróks virði. Samt er utanríkisráðherrann þarna innanborðs. Mér sýnist að öllu að varnar og utanríkismál séu bara alls ekki á dagskrá flokksins og það var dálítið neyðarlegt að heyra í félagsmálaráðherra, Magnúsi Stefánssyni í útvarpi áðan. Hann hafði greinilega ekki gert sér grein fyrir þessu fyrr en þáttarstjórnandinn gekk á með þetta. Magnús eiginlega stamaði og hikstaði og virtist sem hann væri illa lesinn í fræðunum og samþykktum flokkþingsins.

Þetta er afar sérkennilegt. Stjórnflokkur til 12 ára hefur enga mótaða stefnu og markmið í utanríkis og varnarmálum. Kannski er Framsókn að taka upp tækni Sjálf"töku"flokksins og hefur engar handbæra stefnu í viðkvæmum og mikilvægum málum.  Það fór aldrei svo að Framsóknarflokkurinn viðurkenndi að hann er bara að verða að litlu útibúi frá stórabróður .. bláa.


mbl.is Þjóðlendumál ofarlega í huga framsóknarmanna á flokksþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 818201

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband