Stefnuleysi nýrra stjórnvalda að keyra Ísland í nýtt hrun ?

„Hver skýrslan á fætur annarri lítur dagsins ljós, þar sem erlend fjármálastaða landsins gerir lítið annað en að versna.  Ísland er nú að nálgast þá stöðu sem Glitnir var í fyrir hrun að eiga ekki fyrir erlendum skuldbindingum,“ segir verkfræðingurinn Andri Geir Arinbjarnarson í pistli á Eyjunni.

Andri Geir segir að við slíkar aðstæður aukist væntingar fjárfesta um að á endanum þurfi að semja um allar skuldbindingar þjóðarinnar og innlendar krónueignir og/eða að ný neyðarlög séu yfirvofandi.

Þetta sjá erlendir fjárfestar og það sem truflar þá er að Ísland skuli velja krónuna framyfir evruna sem aðeins mun gera vandamálið óleysanlegt. 

Það er ekki skynsamlegt að fara með fjármagn inn í slíkt umhverfi.  Þannig stuðlar krónan að vítahring sem mun viðhalda höftum, gjaldeyrisskorti og lágum launum í framtíðinni.

http://eyjan.pressan.is/frettir/2013/10/10/segir-island-ad-nalgast-tha-stodu-sem-glitnir-var-i-fyrir-hrun/

_______________

Stefnuleysi stjórnarflokkanna er að keyra Ísland inn í nýtt neyðarástand.

Trúverðuleikinn hvarf þegar íhaldflokkarnir fóru að boða ofbeldi gegn kröfuhöfum, hættu viðræðum við ESB og lýstu því yfir að krónan yrði framtíðargjaldmiðill landsins.

Afleiðingar þessa virðast ætla að verða skelfilegri en nokkurn gat grunað.

Trúverðugleikinn gufaði upp á örskotsstundu og Ísland er á góði leið með að lenda á byrjunarreit í erlendum samskiptum.

Hvernig er hægt að klúðra málum jafn kyrfilega á jafn skömmum tíma.

Það hefur dugað skammt þó forsætisráðherra hafi sagt skemmtisögur í erlendum kokteilpartíum.

Er það nema von að maður spyrji og vonist eftir að fá svör ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rafn Guðmundsson

og einu von okkar (esb) hent fyrir borð - gáfulegt

Rafn Guðmundsson, 10.10.2013 kl. 21:58

2 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Þessi pistill á heima á brandarasíðu einhverri... :)

Ólafur Björn Ólafsson, 10.10.2013 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 818222

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband