Flokkur án leiðtoga og pólittískar stefnu.

Þá er því fagnað að Lilja hafi ákveðið að vera áfram innan raða flokksins þótt hún fari ekki fram til Alþingis. „Margir einstaklingar hafa sýnt áhuga á framboði fyrir Samstöðu fyrir næstu alþingiskosningar og framundan er vinna við að setja fram lista í öllum kjördæmum.

________________________

Samstaða var stofnuð um gremju Lilju Mósesdóttur og litla löngun hennar til að ná málamiðlunum og samstöðu um mál.

 Stjórnmálamaður sem vildi fá sitt fram og átti í erfiðleikum með að virða skoðanir annarra.

Slíkt gengur einfaldlega ekki í stjórnmálum og oft er það þrautalending slíkra stjórnmálamanna að stofna til framboðs um sjálfan sig.

Samstaða varð til um Lilju Mósesdóttur, mældist hátt fyrsta korterið, en hrundi síðan niður í pilnerfylgi og hefur verið þar síðan.

Leiðtoginn hefur nú horfið frá flokksbarninu sínu og skilur eftir hóp fólks án leiðtoga og enga stefnu, nema persónulegar skoðanir fyrrum leiðtoga á landsmálunum.

Nú er aðeins ein spurning eftir í þessu Samstöðumáli, verður hægt að koma saman listum í öllum kjördæmum, eru einhverjir nægilega harðir að vilja fórna fé og fjármunum í flokk sem leiðtoginn hljópst frá ?

 


mbl.is „Mikill sjónarsviptir að Lilju“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Jón, það fer að verða spurning hvort skotgrafirnar eru ekki orðnar of djúpar fyrir flokkstitt eins og þig..  Mér sýnist drullan sem þú eyst upp aðeins falla yfir þig sjálfan

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 22.12.2012 kl. 14:31

2 identicon

Það verða tveir nýir flokkar í komandi kosningum sem taka skal alvarlega og gætu fengið samanlagt yfir 20%; Dögun og Björt framtíð.

Gætu orðið vísir að nýju Íslandi.

Samstaða verður líklega ekki einu sinni á lista og Hægri grænir eru of banal til að hafa möguleika.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 22.12.2012 kl. 14:46

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ert þú ekki formaður Samfylkingarinnar á Akureyri?

Sigurður Þórðarson, 22.12.2012 kl. 15:17

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það er aðeins ein fullyrðing í þessari færslu rétt.

Fyrir þá sem hafa áhuga á efnislegri umræðu byggðri á staðreyndum, þá eru hérna nokkrar leiðréttingar á rangfærslum Jóns Inga:

  1. Samstaða var stofnuð af hópi fólks sem vill lýðræði og réttlæti, alveg eins og Lilja og þess vegna var eðlilegt að hún væri í þeim hópi.
  2. Ég hef unnið með Lilju og mín reynsla er sú að fáir þingmenn eru opnari fyrir annara hugmyndum. Aftur á móti veit ég ekki til þess að Jón Ingi hafi nokkurntíma verið í sama herberi og hún.
  3. Það var ekki Lilja sem stofnaði Samstöðu sem einstaklingur utan um sína persónu, heldur er hún þingmaður og er í þessum flokki sem eins og áður segir var stofnaður af hópi fólks um ákveðna stefnu.
  4. Hér er eina rétta fullyrðingin í færslunni, Samstaða mældist hátt í byrjun, en hefur mælst lágt eftir það. Í einni könnun sem var gerð þá var Samstaða ekki einu sinni boðin sem valkostur, því miður.
  5. Ef "leiðtoginn" í þessu samhengi er vísun til Lilju, þá er hún alls ekki horfin frá flokknum (sem er heldur ekki hennar einkabarn). Nýkjörinn formaður Samstöðu er Birgir Örn Guðjónsson og þó að Jón Ingi hafi e.t.v. ekki áhuga á því þá er hérna hægt að lesa allt um þá stefnu sem Samstaða hefur mótað og Lilja Mósesdóttir er aðeins einn af mörgum höfundum að: http://www.xc.is/grundvallarstefnuskra Ég er aðeins að bregða hér upp raunsannri mynd, í drögum að málefnaskrá sem liggja fyrir eru m.a. hendingar sem ég átti sjálfur hlut í að orða, en sumt er tekið beint úr stefnu fullveldissinna og annara aðila sem komið hafa með innlegg í þá vinnu. Tröllasögur um málefnalega einsleitni og stefnuleysi hjá Samstöðu eru því ekki á neinum rökum reistar
  6. Enginn leiðtogi hefur hlaupist frá þessum flokki. Hvort einhver vilji fórna fjármunum í kosningabaráttu verður að koma í ljós, en eitthvað lágmarksfé er allavega hægt að fá skv. kosningalögum. Aftur á móti er talsvert af duglegu og heiðarlegu fólki sem hefur tekið þátt í starfi Samstöðu og er líklegt til að vilja leggja hönd á plóginn í kosningabaráttu, þar á meðal til að manna framboðslista.
  7. Varðandi fyrirsögnina á færslunni þá tel ég að nægilega hafi verið sýnt fram á að hún sé beinlínis röng í öllum meginatriðum.

P.S. Jón Ingi ertu búinn að skila uppgjöri vegna prófkjörsins um árið?

Guðmundur Ásgeirsson, 22.12.2012 kl. 16:14

5 Smámynd: Snorri Hansson

Lilja Mósesdóttir er eini þingmaðurinn sem er mentuð til þess að glíma við vandamálin í kjölfar hrunsins. Að vilja ekki hlusta á hana er ein af öllum þessum heimskupörum sem yfir okkur hefur dunið á síðustu árum.

Snorri Hansson, 22.12.2012 kl. 16:21

6 Smámynd: Viðar Helgi Guðjohnsen

Hvað stendur Samfylkingin fyrir (að fullveldisafsali, eyðileggingu á efnahag og spillingu undanskildu) ?

Viðar Helgi Guðjohnsen, 22.12.2012 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 818229

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband