Sumir vilja ganga í björg.

Vilhjálmur Bjarnason, lektor og framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta býður sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.

__________________

Undarlegt í ljósi alls þess sem hann hefur sagt frá hruni.


mbl.is Vilhjálmur býður sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Daníel Sigurður Eðvaldsson

Nú langar mig að spyrja, hvað hefur hann sagt og hvers vegna er það undarlegt miðað við þessa tilkynningu?

Daníel Sigurður Eðvaldsson, 18.10.2012 kl. 09:25

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Veldur framboð Vilhjálms titringi í Samfylkingunni?????

Tómas Ibsen Halldórsson, 18.10.2012 kl. 09:31

3 identicon

Verð nú að spyrja þess sama og Daniel.Og hvað ertu að meina með "ganga í björg".Á það kannski að vera ,ganga fyrir björg.

josef asmundsson (IP-tala skráð) 18.10.2012 kl. 09:34

4 Smámynd: Daníel Sigurður Eðvaldsson

Tja ... það eru tveir sterkir viðskipta/hagfræði menntaðir einstaklingar að bjóða sig fram í báðum stjórnarandstöðuflokkunum, Frosti fyrir Framsókn og Vilhjálmur fyrir Sjálfstæðisflokkinn. VG hafði nú Lilju en ákvað víst að útskúfa hana. 

Daníel Sigurður Eðvaldsson, 18.10.2012 kl. 09:35

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

það eru þrír sterkir viðskipta/hagfræði menntaðir einstaklingar að bjóða sig fram í þremur af fjórum stjórnarandstöðuflokkum á þingi, Frosti fyrir Framsókn, Vilhjálmur fyrir Sjálfstæðisflokkinn... ... og Lilja fyrir Samstöðu.

Sko, ég lagaði þetta fyrir þig! :)

Guðmundur Ásgeirsson, 18.10.2012 kl. 11:04

6 Smámynd: Daníel Sigurður Eðvaldsson

hehe ... takk fyrir leiðréttinguna Guðmundur. Gleymdi mér aðeins þarna.

Daníel Sigurður Eðvaldsson, 18.10.2012 kl. 13:14

7 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Titringi... nei..af hverju ?

Jón Ingi Cæsarsson, 19.10.2012 kl. 20:22

8 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Guðmundur, Lilja sagði sig frá formannstöðu í Samstöðu, það er ekkert sem bendir til þess að hún bjóði sig endilega fram því hún endist stutt í þeim samtökum þar sem hún mætir til leiks.

Jón Ingi Cæsarsson, 19.10.2012 kl. 20:23

9 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Vilhjálmur býr í Garðabæ, einu tryggasta vígi Sjálfstæðisflokksins þar sem mjög margir hátekjumenn búa. Þar er rekstur sveitarfélagsins mun léttari en t.d. í Reykjavík og öðrum barnmörgum sveitarfélögum með fremur tekjulága hópa. Vilhjálmur hyggst keppa við aðra Sjalla í kjördæminu og fá þá til að hugsa meira inn á miðjuna og jafnvel handan hennar. Villa þekki eg frá því við vorum bekkjarfélagar á 7. áratugnum og hefur alltaf vitað hvað hann vill. Takist Vilhjálmi áform sín, þá bætir Sjálfstæðisflokkurinn sig verulega í greindarvísitölunni sem ekki veitir af miðað við sem annar skólafélagi okkar Villa úr MH, Ragnar Önundarson ritaði grein í Mogga um tilverukreppu Sjálfstæðisflokksins á dögunum, kröftug gagnrýni gegn þrásetu braskara flokksins.

Þess má geta að faðir Villa, Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjalavörður, fylgdi Alþýðuflokknum að málum og var einn mikilvægasti hvatningamaður Kristjáns Eldjárns að hann bauð sig fram gegn Gunnari Thoroddsen 1968 í frægum kosningum til embættis forseta.

Góðar stundir.

Guðjón Sigþór Jensson, 19.10.2012 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 818227

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband