Sameina alla rugludallana í einum flokki.

"Við myndum fagna því að fá eitthvað af þessu fólki til liðs við okkur. Það þarf að vera á ákveðnum forsendum. Þær forsendur hafa verið skoðaðar og þær eru vel yfirstíganlegar,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, aðspurður hvort hjásetuþingmennirnir þrír í VG séu velkomnir í flokkinn."

Ég tek heilshugar undir þetta sjónarmið. Það væri mikil einföldun að færa alla þessa villuráfandi rugludalla í einn flokk. Þá geta þeir sem eru að vinna fengið við það frið því það er afar þægilegt að vita af þessum hópi á einum stað.

Ég skora á Ásmund, Atla og Lilju að hugleiða þetta í fúlustu alvöru...það væri til mikilla þæginda fyrir þá sem eru að vinna. Fyrir eru þrír þingmenn sem eru venjulega langt úti á túni og því ætti þeim að vera umhverfið kunnugt sem bíður þeirra í Hreyfingunni.

Kannski eru fleiri sem ættu þarna heima..en þá þarf að huga að því að styrkja ríkisstjórnina með þingmönnum sem taka hluverk sitt alvarlega og vilja vinna með þjóðarhag að leiðarljósi.


mbl.is Velkomin í Hreyfinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Áttu við að þeir gangi í Samfylkinguna Jón?  Var það ekki um hana sem rugludallarnir sameinuðust um árið?

Magnús Sigurðsson, 20.12.2010 kl. 14:26

2 identicon

Voðalega ertu neikvæður úr í Hreyfinguna, einu vona alþýðunnar - sauðsvarts almúgans - sem er nú hokinn og buguð undan áratuga yfirgangi, niðurlægingu og kúgun fjórflokkselítunnar. Nota tækifærið og segi: Megi fjórflokkurinn, leggja sjálfan sig til ævarandi hvíldar, ef ekki af eigin völdum þá af völdum kjósenda. með bestu kveðjum norður á slóðir forfeðra minna.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 17:02

3 Smámynd: Óðinn Þórisson

Öll mál hafa komið upp sem hefðu átt að fella þessu ríkisstjórn en ríkisstjórnin er ónæm fyrir stjórnarslitum og ef Framsókn tekur að sér að vera hækja hennar þá er líklegt að Framsóknarflokkurinn sé þá að leggja grunn að því að leggja sjáfan sig niður -

Óðinn Þórisson, 20.12.2010 kl. 20:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband