Óábyrgur málflutningur formanna.

Merkilegt að lesa það sem Birgitta þingflokksformaður Borgarhreyfingarinnar skrifar á bloggið sitt. Það staðfestir sem mig grunaði að málflutningur formanna Framsóknar og Sjálfstæðsflokks er óábyrgt gaspur sem á að hafa þann tilgang einan að koma höggi á ríkisstjórnarflokkana.

Það er upplýsandi fyrir almenning að fá sýn óhlutdrægar manneskju á þennan fund. Formenn gömlu hagsmunagæsluflokkana eru aðeins að þjóna flokkshagsmunum og eigin geði með að reyna að gera mál grunnsamleg og svífast einskis í því.

Ég bloggaði um hallærislega orðræðu formanns Framsóknarflokksins í gær og fjallaði þar um umræðu Sigmundar Davíðs þar um. Birgitta nálgast málið á sama hátt og upplifir eins og ég það hversu forpokaður og blindur Framsóknarflokkurinn er á stöðu sína.

Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðsflokkurinn halda enn að þeir geti skipt öllu á milli sín eins og þeir hafa gert í áratugi. Þeir átta sig ekki á að nú er það ekki í gildi. Nú sitja þeir við sama borð og aðrir og verða að sætta sig við það.

Tími helmingaskipti þessara flokka er vonandi liðinn um alla framtíð.

En það verður samt að ætlast til af þeim að þeir hjálpi til við endurreisnina og leggi til hliðar þjónkun sína við flokkshagmuni. Hinir nýju formenn þessar gömlu flokka eru ekki að skilja ábyrgð sína enn.... og hafa greinilega enn ekki áttað sig út á hvað búsáhaldabyltingin gekk...

Hún gekk nefnilega út á að losna við svona menn og svona vinnubrögð úr íslenskri pólitík... og fá í þess stað heiðarlega og gegnsæja umræðu.


mbl.is Ekki var búið að laga orðalag ESB-plaggsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef búsáhaldabyltingin gekk út á að losna við þessa menn og þessi vinnubrögð.. Afhverju varst þú svona skeptískur á hana á sínum tíma? :-)

Henrý Þór (IP-tala skráð) 14.5.2009 kl. 14:36

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Svona menn, ekki þessa..... það er þeirra að skilja skilaboðin Henrý...

Jón Ingi Cæsarsson, 14.5.2009 kl. 15:15

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

"Vanhæf ríkisstjórn" hrópaði fólkið í búsáhaldbyltingunni. Ríkisstjórn Sjálfsstæðisflokks og Samfylkingar.

Víðir Benediktsson, 14.5.2009 kl. 20:27

4 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Víðir.. enda fór hún frá.

Jón Ingi Cæsarsson, 15.5.2009 kl. 15:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 818125

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband