Manneskjulegt yfirbragð.

2021 tanginn„Þetta er í samræmi við niðurstöður íbúakosningarinnar; valkostur 1, lægsta byggðin, er það sem fólk kýs,“ segir Páll Jakob við Akureyri.net. „Fólk kýs almennt lægri byggð og fyrir því eru ástæður: eftir því sem byggðin er lægri líkar fólki hún betur og tengir betur við hana, þykir hún manneskjulegri. Það kemur mér því ekki á óvart að sá kostur sem kemur verst út eru hæstu húsin, en strangt til tekið er ekki marktækur munur á milli valkosta 2 og 3; miðað við niðurstöðuna getum við ekki sagt hvor kosturinn fólki þykir betri eða verri.

( akureyri.net )

 

Á vefsíðunni akureyri.net er fjallað um niðurstöðu úr könnun Envalys þar sem spurt var um sambærileg atriði og í íbúakönnun Akureyrarbæjar.  Þátttakendur vilja óbreytt skipulag, og hafna mjög afgerandi hærri byggð en heimildir eru fyrir í gildandi skipulagi frá 2018.

 

Þetta sýnir okkur svo ekki verður um villst á hverskonar villigötum bæjaryfirvöld og sérstaklega Skipulagráð voru.  Skipulagsráð var reyndar svo óábyrgt að það reyndi að fá bæjarstjórn til að samþykkja breytingu sem ekkert fylgi reyndist fyrir í báðum þessum könnunum. En bæjarstjórn stóð í lappirnar og sendi tillögu ráðsins til baka.

 

Líklega hafa bæjarfulltrúar séð að ganga gegn vilja íbúa á Akureyri svona skömmu fyrir kosningar væri glapræði.

 

Það er fróðlegt að lesa þessa frétt á akureyri.net og kynna sér skoðun þess sem að þessari könnun stóð. Það má komast inn á þá frétt með að smella á upphafssetningar hér að ofan.

 

Rauði þráðurinn er yfirbragðið sé manneskulegt er samandregin skoðun þeirra sem að komu.

 

Enda var arkitektaæfingum eindregið hafnað og væntanlega úr sögunni.

 

En þar má ekki láta staðar numið, finna þarf leiðir til að uppbygging í hóflegum fasa hefjist á Tanganum.

Þar verða bæjaryfirvöld að taka til hendi í samvinnu við íbúa. Leiðin er vörðuð í aðalskipulagi 2018.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 818122

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband