Skattahækkanir Sjálfstæðisflokksins.

 

Sjálfstæðisflokkurinn talar alltaf fyrir skattalækknum þegar tækifæri gefast.

Það hefur ekkert breyst og þessi umræða hefur verið áberandi frá síðustu stjórnarmyndun.

Stefán Ólafsson dregur það sérlega vel fram í bloggfærslu sinni hvernig " skattalækkanir " Sjálfstæðisflokkurinn er að ræða.

Lækkun á vörugjöldum á lúxusvarning og lækkun á hæsta skattþrepi virðisaukans.

Aftur á móti verður  FLOKKNUM ekki eins tíðrætt um skattaHÆKKANIR sem hann vill koma til framkvæmda.

 Stefán segir í bloggfærslu sinni.

Matvæli bera í dag lægri virðisaukaskatt en flestar aðrar vörur, eða 7% í stað 25,5%.

Lægra álagningarþrepið á matvæli var á sínum tíma sett til að hlífa venjulegum heimilum við útgjaldabyrðum.

Þessu vilja Sjálfstæðismenn nú breyta. Þeir vilja tvöfalda matarskattinn (7%>>>14%) en lækka almennu álagninguna í staðinn, úr 25,5% í 24,5%.

Fáir munu finna fyrir lækkun vsk. um eitt prósentustig (ef kaupmenn skila því yfir höfuð til neytenda). En þeir sem hafa þungar byrðar af matarkaupum, t.d. fyrir barnmargar fjölskyldur, munu finna fyrir tvöföldun vsk-álagningar á innlendu matvælin.

Svo mörg voru þau orð.

 http://blog.pressan.is/stefano/2014/08/05/finnst-ther-matur-ekki-nogu-dyr/

Fróðlegt að lesa blogg Stefáns í heild sinni. 

Eins og sjá má á þessum áherslum beinist áhugi Sjálfstæðisflokksins að því að auka hag þeirra sem mest eiga og best hafa það í þjóðfélaginu.

Purkunarlaust leggja þeir það síðan til, að því sem þeir ætla að færa ríkara fólkinu á silfurfati, er þeim sem minnst hafa ætlað að fjármagna.

Skattalækkanir Sjálfstæðisflokksins eru því fyrst og fremst ætlað að styrkja stöðu flokksins hjá þeim þjóðfélagshópum sem hafa það best.

Skattalækkanir Sjálfstæðisflokkins eru skattahækkanir þeirra sem minnst mega sín. 

Þetta eru gömlu áherslur Sjálfstæðisflokksins í sinni skýrustu mynd. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 818135

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband