31.12.2016 | 09:20
Björt framtíð - vörusvik ársins.
___________________
Þá er ný ríkisstjórn í burðarliðnum.
Ríkisstjórn hægri aflanna á Íslandi.
Kjósendur púuðu niður slíka stjórn á Austurvelli í vor en mættu síðan í kjörklefana og kusu aðra slíka.
Sjálfstæðisflokknum virðist vera að takast að landa tveimur smáflokkum og ætlar þeim hækjuhlutverk í samræmi við þingstyrk, en Sjálfstæðisflokkurinn á að hafa tögl og hagldir í þeirri ríkisstjórn.
Framundan eru því dagar þar sem hægri áherslur verða í forgangi og þetta kjörtímabil því í reynd bein framlenging á því sem lauk í haust, forréttindahópar í öndvegi, samfélagskerfi í fjársvelti og dulbúinni einkavæðingu komið á í heilbrigðiskerfinu.
Hvað breyttist þá með 20.000 manna fundi á Austurvelli ?
Nákvæmlega ekki neitt annað en Sjálfstæðisflokkurinn losnaði við Framsókn og fékk tvo nytsama sakleysingja með sér til heimabrúks.
Hvað Viðreisn varðar var þetta algjörlega fyrirséð, afleggjari Sjálfstæðisflokkisins fór vitaskuld beint heim, enda passaði frjálshyggjuhugarfar þeirra ekki við miðju og vinstri flokka á Íslandi.
Björt framtíð er aftur á móti furðuflokkur þessara kosninga.
Buðu sig fram í nafni frjálslyndis og miðjustjórnmála.
Runnu síðan inn í hægri flokkinn Viðreisn og máttleysislegur formaðurinn hefur fært Benedikt í Viðreisn fullt forræði yfir stefnumálum og áherslum flokksins. Furðulegt í beinu framhaldi af kosningum og vond svik við kjósendur flokksins.
Björt framtíð var því undir fölsku flaggi í kosningabaráttunni og fjöldi jafnaðarsinnaðra kjósenda kusu flokkinn og björguðu honum frá að hverfa af þingi.
Uppskera þessara kjósenda eru aukinn völd Sjálfstæðisflokksins á Íslandi næstu misseri og mér er stórlega til efs að það hafi verið hugsun þessara sömu kjósenda.
Björt framtíð er því öruggur sigurvegari í keppni um vörusvik ársins.
Ekki annað hægt en vorkenna kjósendum BF fyrir að falla fyrir blekkingunni.
Nytsöm hækja hægri aflanna á Íslandi búin að kasta dulargerfinu og opinberað sig til framtíðar.
Þarf að ríkja gott traust | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
http://joningic.blog.is/blog/joningic/
Blogg frá 12.11.
Stóð aldrei annað til segja margir.
Jón Ingi Cæsarsson, 31.12.2016 kl. 09:30
Vörusvik ársins já, Hvað kallast það þegar Viðreisn sem býður fram hóp af hákörlum lengst til hægri og kallar sig miðuflokk? ótrúlegt hversu margir bitu á það agn, það liggur við að maður hafi samúð með Óttari Proppe þegar hann birtist á skjánum með Benedikt Viðreisnar og gjörsamlega búinn að magagleypa öngul Beneditks og losnar ekki af því veiðarfærinu.
Hrossabrestur, 31.12.2016 kl. 10:16
Bara af forvitni: hvað skilgreinirðu eiginlega sem miðjuflokk?
Hvað gerir flokk til vinstri?
Hvernig virkar þetta "frjálslyndi" sem þú (og fleiri) tönnlast á?
Spyr ég, vegna þess að þú ert ekki að vinna út frá orðabókarskilgreiningunni.
Ásgrímur Hartmannsson, 31.12.2016 kl. 18:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.