Náttúrulöggur Sjálfstæðisflokksins.

Svandís spurði einnig að því hver myndi hafa eft­ir­lit með því hvort pass­inn væri við hendi eða ekki og hvað myndi ger­ast ef Íslend­ing­ur gæti ekki fram­vísað pass­an­um.

Ráðherra svaraði því til að framkvæmdin væri í höndum Ferðamálastofu og ef menn gætu ekki framvísað passa yrðu lagðar á sektir.

Svokallaðir " náttúruverðir " eru því hið frábæra framlag Sjálfstæðisflokksins til landsmanna.

Þeir verða á ferðinni um náttúru landsins og leita uppi þá sem ekki hafa borgað þennan nýja skatt FLOKKSINS.

Væntalega verða þeir á ferðinni með posa og nettengdir til að tékka á kennitölum og gefa út sektamiða.

Sér ráðherra virkilega ekki fáránleikann í þessum tillögum ?

Að mörgum tillögum þessar ríkisstjórnar er þessi sennilega sú bjánalegasta af þeim öllum.

Ég trúi ekki að Alþingi taki ekki ráðherrann niður úr þessu tré fáránleikans.

En ljósi punkturinn er kannski að hennar mati að þetta er atvinnuskapandi og hægt að ráða inn 2 - 3.000 eftirlitsmenn á dúndurlaunum.

 

 

 


mbl.is Ekki bannað að fara í berjamó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Hver ætlar að sekta mig við að skoða Dimmuborgir. Hver ætlar að ná út úr mér nafni og kennitölu til að skrásetja sektina.

Verða þessar náttúrulöggur með valdbeitingaheimildir til að toga nöfn og kennitölur út úr brotamönnum á vettvangi ?

Jón Ingi Cæsarsson, 2.12.2014 kl. 18:21

2 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Hver veit? Ferðamálastofa leitar kannski til Landeigendafélagsins Geysis ehf. Það eru menn með reynslu.

Wilhelm Emilsson, 2.12.2014 kl. 21:15

3 Smámynd: Agla

Myndi ég þurfa að hafa náttúrupassann með mér ef ég færi í helgarboð úr bænum í Fljótshlíðina?

Er hugsanlegt að náttúrulöggurnar verði búnar hríðskotabyssum?

Agla, 2.12.2014 kl. 22:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 818825

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband