Björn Bjarnason og kjánarnir.

Í gær skrifaði ég lítið blogg sem ég kallaði "Samstíga um stöðnun og einangrun" Tilefnið var frétt Fréttablaðsins um samstöðu VG og Sjálfstæðisflokks um utanríkismál. Björn Bjarnson formaður nefndarinnar lét þessi skrif fara í taugarnar á sér og sagði orðrétt á bloggi sínu.

" Illgjarn spuni Péturs Gunnarssonar um málið eða kjánalegar samsæriskenningar í nafni Samfylkingar á Akureyri breyta engu um þessa efnislegu afstöðu mína til aðildar Íslands að Evrópusambandinu." Svo mörg voru þau orð.

Í dag hafa síðan orðið atburðir þar sem kemur berlega í ljós hver er kjáninn í þessu máli. Þungviktarmenn í íslensku fjármálalífi gagnrýna Björn og félaga fyrir þröngsýni og afturhald. Hann og ríkisstjórninn skilja ekki þá alþjóðavæðingu sem á sér stað og halda það í fávisku sinni að þeir geti með höftum stjórnað atburðarás. Það mun því ekki líða á löngu þar til öll þungaviktarfyrirtæki í íslensku fjármálalífi hafa yfirgefið torfkofasýn Björns Bjarnasonar og Vinstri grænna. Það er ef til vill tilgangurinn, eða hvað ?

Að lokum smá tilvitnun í bloggið frá í gær.

Þá er það staðfest. Öfgaflokkarnir til vinstri og hægri vilja einangra sig frá Evrópu og eru samstíga um ályktanir um það sem þeir vita ekkert um. Frétt í Fréttablaðinu bendir til að flokkarnir séu sammála um grundvallarmál er varðar framtíð landsins og tengsl þess við umheimin. Hluti fréttarinnar hljómar svo.

Sjálfstæðisflokkur og VG samstiga gegn ESB

Nú virðast þessir flokkar á ysta kanti íslenskra stjórnmála vera að ná saman um einangrun landsins til framtíðar. Það er alverlegt umhugsunarefni. Tæplega þrjátíu þjóðir í Evrópu hafa nú sameinast í ESB og fleiri vilja komast inn. Það er aðeins tímaspursmál hvenær Noregur sækir um inngöngu þó svo staða þeirra sem vellauðugrar þjóðar sé allt önnur en okkar.

Það er því þessi staðreynd sem blasir við. VG og Sjálfstæðisflokkurinn hafa náð saman um einangrun landsins til framtíðar þó svo ég trúi því að það sé á ólíkum forsendum. Sjálfstæðismenn af því pólitískt ofurvald flokksins á þjóðfélagið mundi rýrna en VG bara af því eru þröngsýnn og óraunsær sócalistaflokkur með torfkofavinkil á Íslenskt samfélag.


mbl.is Straumur-Burðarás knúinn til að kanna möguleika á að fara til annars lands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Okt. 2024
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband