7.7.2014 | 15:25
Hannes Hólmsteinn er fullkomlega vanhæfur.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor við Háskóla Íslands mun fara fyrir verkefni sem ætlað er að meta erlenda áhrifaþætti bankahrunsins haustið 2008. Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Félagsvísindastofnun Íslands undirrituðu í dag samning vegna verkefnisins, en miðað er við að því ljúki sumarið 2015.
http://eyjan.pressan.is/frettir/2014/07/07/hannes-h/
( pressan.is)
Margt fráleitt hefur maður séð frá þessari ríkisstjórn.
En að fjármálaráðuneytið skuli ráða einn mesta jábróður flokksins og snata fyrrum seðlabankastjóra til að leiða þetta verkefni er annað hvort grátlega fyndið eða fullkomlega fáránlegt.
Auðvitað mun enginn taka mark á niðurstöðum þessa því allir vita fyrir hvað HHG stendur og hvar stuðningur hans liggur.
Ef ríkisstjórninn vil eyða milljónum í marklaus plögg er illa komið fyrir henni.
Skattgreiðendur eiga kröfu á að betur sé farið með skattpeningana.
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 818828
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hver frá LANDRÁÐAFYLKINGUNNI er hæfari??????????
Jóhann Elíasson, 7.7.2014 kl. 22:20
Nú er maður nánast orðlaus yfir nýjasta „afreki“ ríkistjórn braskaranna á Íslandi. Að Hannesi Hólmsteini sé falin yfirstjórn að rannsaka erlenda áhrifahætti sem tengist bankahruninu á Íslandi er illa varið skattfé landsmanna. Þessi maður getur vart talist vera heppilegasti maðurinn til þessa starfs því hann er hvorki hlutlaus til verkefnisins né sérlega vel til þess hæfur að rannsaka eitthvað sem tengist efnahagslegum hagsmunum þar sem hann var aðal hugmyndafræðingur þeirrar spillingar og brasks sem tengja má frjálshyggjunni og leiddi til bankahrunsins.
Með þessu er ríkisstjórnin að hygla vildarmanni sínum sem er einn furðulegasti fræðimaður á sviði óheftrar gróðahyggju á kostnað venjulegs fólks. Því miður var það fyrst og fremst frjálshyggjan en ekki Bretar sem dró íslensku þjóðina á asnaeyrunum fram af hengifluginu og nú ætlar ríkisstjórnin að bíta í skottið á sjálfri sér og upphefja þennan furðulega fræðimann sem skilið hefir okkur í óráðsíu og spillingarfeni hagfræði andskotans.
Kommúnisminn var á sínum tíma slæmur. Spurning er hvort hagfræði Hannesar og frjálshyggjunnar reynist ekki jafnvel enn verri þegar upp er staðið.
Mikill er spillingaróþefurinn af þessari ákvörðun og mun lengi í minnum háð meðan land byggist.
Guðjón Sigþór Jensson, 7.7.2014 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.