Fjármálaráðherrann - ESB - Evran.

Evra í Lettlandi

 Fjármálaráðherra fór mikinn í Kryddsíldinni.

Þáttastjórnendur reyndu að fá svör frá ráðherrum stjórnarflokkanna varðandi umsóknarferlið og þá ákvörðun að ( hætta ) aðildarviðræðum.

Það var fátt um svör og þeir vísuðu í starfshópa sem eiga að skila niðurstöðum á næstunni varandi stöðu umsóknarmálanna.

Þeir vildu ekki viðurkenna á sig svik við kjósendur, viðræður væru í gangi, sem þeir reyndar eru einir um að fullyrða.

En það var áhugavert að hlusta á fjármálaráðherra tala niður ESB og sérstaklega evruna, sem var að hans mati óöruggur gjaldmiðill sem ekki væri að treysta á. Það skein í gegn að hann var á þeirri opinberu skoðun að Ísland ætti að halda í krónuna um ókomna framtíð.

Meðan fjármálaráðherrann, þessi með örkrónuna, verðbólguna og ónýta efnahagskerfið talaði niður gjaldmiðil 17 þjóða gekk sú átjánda í myntbandalagið, en Lettland tók upp evru á áramótum.

Bjarni Benediktsson kallaði eftir breytingum fyrir fimm árum, vildi skoða í botn möguleika Íslands í gjaldmiðilsmálum.

En sá Bjarni var lokaður ofan í skúffu og sá Bjarni sem nú talar, talar í anda Framsóknarflokksins, engin framtíðarsýn og aðeins skammtímareddingar.

Það var eiginlega sársaukafullt að heyra skilningsleysið drjúpa af hverju orði þegar hann talaði niður gjaldmiðil tugmiljóna Evrópubúa og hampaði sinni ónýtu flotkrónu. Vont að hafa ráðamenn sem ekki vilja hugsa fram veginn.

Og enn verra að hafa ráðamenn sem taka lýðræðislegan rétt kjósenda að ákveða framtíð sína sjálfir.

Bjarni Ben       Einu sinni sagði Bjarni þetta.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband