10.10.2012 | 21:53
Dansinn í Hruna í boði FLOKKSINS.
Einu sinni til forna var prestur í Hruna í Árnessýslu, sem mjög var gefinn fyrir skemmtanir og gleðskap. Það var ávallt vani þessa prests, þegar fólkið var komið til kirkju á jólanóttina, að hann embættaði ekki fyrri part næturinnar, heldur hafði dansferð mikla í kirkjunni með sóknarfólkinu, drykkju og spil og aðrar ósæmilegar skemmtanir langt fram á nótt. Presturinn átti gamla móður, sem Una hét; henni var mjög á móti skapi þetta athæfi sonar síns og fann oft að því við hann. En hann hirti ekkert um það og hélt teknum hætti í mörg ár. Eina jólanótt var prestur lengur að þessum dansleik en venja var; fór þá móðir hans, sem bæði var forspá og skyggn, út í kirkju og bað son sinn hætta leiknum og taka til messu. En prestur segir, að enn sé nægur tími til þess, og segir: "Einn hring enn, móðir mín." Móðir hans fór svo inn aftur úr kirkjunni. Þetta gengur í þrjár reisur, að Una fer út til sonar síns og biður hann að gá að guði og hætta heldur við svo búið en verr búið. En hann svarar ávallt hinu sama og fyrri. En þegar hún gengur fram kirkjugólfið frá syni sínum í þriðja sinn, heyrir hún, að þetta er kveðið, og nam vísuna:
- "Hátt lætur í Hruna;
- hirðar þangað bruna;
- svo skal dansinn duna,
- að drengir mega það muna.
- Enn er hún Una,
- og enn er hún Una."
Þegar Una kemur út úr kirkjunni, sér hún mann fyrir utan dyrnar; hún þekkti hann ekki, en illa leist henni á hann og þótti víst, að hann hefði kveðið vísuna. Unu brá mjög illa við þetta allt saman og þykist nú sjá, að hér muni komið í óefni og þetta muni vera djöfullinn sjálfur. Tekur hún þá reiðhest sonar síns og ríður í skyndi til næsta prests, biður hann koma og reyna að ráða bót á þessu vandkvæði og frelsa son sinn úr þeirri hættu, sem honum sé búin. Prestur sá fer þegar með henni og hefur með sér marga menn, því tíðafólk var ekki farið frá honum. En þegar þeir koma að Hruna, var kirkjan og kirkjugarðurinn sokkinn með fólkinu í, en þeir heyrðu ýlfur og gaul niðri í jörðinni. Enn sjást rök til þess, að hús hafi staðið uppi á Hrunanum, en svo heitir hæð ein, er bærinn dregur nafn af, sem stendur undir henni. En eftir þetta segir sagan, að kirkjan hafi verið flutt niður fyrir Hrunann, þangað sem hún er nú, enda er sagt, að aldrei hafi verið dansað síðan á jólanóttina í Hrunakirkju.
___________________________
Það var dansað í Hruna frá 1995 - 2007.
Nú er dansstjórinn mættur á ný og hvetur fyrrum veislugesti til að mæta til dansleiks á ný eftir næstu kosningar.
Það var ekki dansað meir á Hruna í gömlu þjóðsögunni en það kemur í ljós eftir næstu kosningar hvort gylliboðum gamla dansherrans frá því fyrir Hrun ( a ) verður tekið og ballið hefst á ný með vini og vandmenn dansmeistarans í öndvegi.
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þeir sem fara niður til Brussel, eru keppast við að taka upp aðalsnöfn til þess að líta vel út þarna niðri. Ein mun heita Jóhanna von Skjaldborg, annar að norðan mun heita Steingrímur von Icesave og enn einn Jón Ingi von Nubo, víst til heiðurs forystu Samfylkingarinnar vegna stefnu hennar í fjárfestingum Kínverja á Íslandi.
Árin 1995-2007 voru Samfylkingunni afar erfið, hræðilega erfið, alltaf í stjórnarandstöðu. Komust þá í lokin í fangið á Sjálfstæðisflokknum og beittu sér í efnahagsmálum, eins og frægt er orðið. Nú svo kom ríkisstjórn Jóhönnu og traust almennings á drottningunni fór úr 70% niður í 15% og nú hefur hún ákveið að taka til fótanna.
Nú kemur nýtt tímabil 2013-2029, þar sem Samfylkingin fer aftur í endurhæfingu, þar sem sú fyrri virkaði ekki sem skyldi. Það segir mér svo hugur að flokkurinn muni ekki lifa þann tíma. Munir um rauðu kúluna verður komið fyrir í einu herbergi á safni.
Sigurður Þorsteinsson, 10.10.2012 kl. 23:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.