16.2.2011 | 16:53
Vill fólkið afnema þingræðið og koma á einræði ?
Stjórn Sambands Ungra framsóknarmanna hefur samþykkt ályktun þar sem skorað er á forseta Íslands að vísa nýsamþykktum Icesave-lögum til þjóðarinnar.
Þingið hefur samþykkt lög með miklum meirihluta. Nú vilja ýmir að forsetinn grípi inn í gerðir þingsins þar sem fyrir liggur afgerandi niðurstaða þar sem 44 segja já og 16 nei.
Áttar fólk sig ekki á valdaleysi forseta Íslands. Það er formsatriði að forseti undirriti lög og það þarf afar ríkar ástæður til að hann geri eitthvað annað.
Að vísu hefur núverandi forseti verið áhrifagjarn og veiklundaður ef honum eru færðir undirskriftalistar þannig að þrýstihópar hafa verið að ganga á lagið í æ ríkari mæli og skiptir þá engu þó ógegnsæjir undirskriftalistar af netinu eigi í hlut.
Ef fólki er svona umhugað að afnema þingræðið og koma á einræði þá er tækifærið núna. Bæta mætti við í stjórnarskrá ákvæðum sem afnumin voru úr dönsku lögunum á 19. öld þegar konungur þar hafði vald á þingi og þjóð... nánast einvaldur.
Nýja ákvæðið gæti hljóðað svo.
Ef forseta líkar ekki eða þóknast gerðir þingsins þá er honum heimilt að grípa til allra þeirra ráða sem HANN telur réttar og og honum líkar best.
En ég legg nú til að embættisheitinu verði jafnframt breytt í KEISARI ÍSLANDS..
Skora á forsetann að synja lögunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert fyndinn - er það einræði að láta þjóðina kjósa?
Gullvagninn (IP-tala skráð) 16.2.2011 kl. 17:39
Endemis kjaftæði! Það þarf meira en lítið brenglaða hugsun til þess að líkja því við einræði að vísa umdeildu stórmáli í þjóðaratkvæði. Það má véfengja umboð hinna 44 þingmanna til þess að ljúka málinu. Margt ófyrirséð hefur gerst á þessu hálfa kjörtímabili frá því að núverandi þing fékk sitt umboð. Ef kosið yrði nú þá félli margt af þessu liði út af þingi, einnig úr okkar flokki. Kjafthátturinn út í forsetann er ekki svaraverður.
Haukur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 16.2.2011 kl. 18:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.