Allt í steik ?

Eygló Harðardóttir félags-og húsnæðismálaráðherra og Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Framsóknarflokksins sátu hjá við atkvæðagreiðslu á Alþingi í dag er greidd voru atkvæði um annars vegar fjármálastefnu 2017-2021 og fjármálaáætlun sömu ára. Um stjórnarfrumvörp var að ræða.

______________

Áhugaverð staða.

Minnihluti greiddi atkvæði með tillögum ríkisstjórnarinnar um fjármálastefnu og fjármálaáætlun.

Afar fáir tóku þátt og virtist hópur fjarverandi, líklega var formaður Framsóknarflokksins í þeim hópi enda ekki mætt í þingið nema í flugulíki fáeinar mínútur á mánudaginn.

Síðan splundrast meirihlutinn í málinu og ráðherra Framsóknar situr hjá ásamt þingmanni.

Það dylst engum að gríðarlegur pirringur er kominn á báða stjórnarflokkana og þeir í reynd búnir að missa tökin á landsstjórninni.

Allt í steik ?

Já örugglega, þetta er búið spil og viðvera þessarar ríkisstjórnar er nú bara formsatriði.

Framsóknarráðherrar hafa talað um að stjórnarandstaðan ætti ekki að þvælast fyrir.

Allir sjá að þeir sem þvælast fyrir og ráða ekki við neitt eru þeir sjálfir.

Takk fyrir og bless eru líklega orð dagsins.

 


Bloggfærslur 18. ágúst 2016

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 818224

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband