Leikskóladeild Sjálfstæðisflokksins leikur sér fram á nótt.

Í litla leikhúsinum við Austurvöll leikur stuttbuxnadeild Sjálfstæðisflokksins sér að þolinmæði þjóðarinnar. Eins og kemur víða fram í bloggheimum er fólki farið að blöskra þessi fíflagangur sem á sér stað í þingsölum.

Maður eiginlega er orðin úrkula vonar að þetta fólk sem þarna starfar...sérstaklega ákveðinn hluti stjórnarandstöðunnar með helstu sökudólga efnhagshrunsins í broddi fylkingar, höndli heilbrigða skynsemi.

Þetta er sorglegur og bjánalegur leikur sem maður sér eiga sér stað í þingsölum. Meðan Róm brennur leikur leikskóladeild Sjálfstæðisflokksins sér að fjöreggi þjóðarinnar og tefur endurreisinina með öllum ráðum.

Líklega eru þeir komnir að barmi taugaáfalls í skelfingu sinni um hvaða úrreið þeir og flokkur þeirra muni fá í skýrslu rannsóknarnefndarinnar í febrúar... í það minnsta er þeim ekki sjálfrátt.


mbl.is Deildu um þingsköp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ég er að verða úrkula vonar að stjórnarþingmenn mæti í vinnuna.

Óðinn Þórisson, 29.11.2009 kl. 11:00

2 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Í hvaða aðstöðu ert þú, Jón Ingi, að tala fyrir hönd þjóðarinnar?

Hjörtur J. Guðmundsson, 29.11.2009 kl. 11:19

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Eitthvað held ég að þú sért að misskilja hugtakið "fjöregg þjóðarinnar" en sem betur fer er Jóhanna enn með á nótunum þegar rætt er um fjöreggið. Reyndar er þetta frá þeim tíma þegar Jóhanna var enn skynsöm og hafði vit á að hafa efasemdir en það er víst liðin tíð. http://www.althingi.is/johanna/pistlar/safn/000360.shtml

Víðir Benediktsson, 29.11.2009 kl. 11:49

4 Smámynd: Kristinn Pétursson

Ekki stjórnar Sjálfstæðisflokkurinn dagskrá þingsins. Deilurnar snúast um forgangsröð málefna. Sjálfstæðisflokkurinn vill að Icesave málið víki og mikilvægari mál okkar komist að.

Icesave málið er í raun tæplega þingtækt - það ætti að vísa Icesave málinu í nýtt samningaferli með dagskrártillögu um að vísa málinu til Fjárlaganefndar með samþykkt um að hefja nýjar viðræður - og biðja Evu Joly að stjórna þeim viðræðum.

Eva Joly býr yfir sérþekkingu á við refsilögjöf í Evrópu og er því hæfasta manneskja sem við getum fengið - til að leiða samningaviðræður við Breta. 

Eva Joly getur bent Bretum á - í slíkum viðræðum -  hvaða refsilöggjöf þeir hafi brotið með beitingu hryðjuverkalaga á Íslensku þjóðina -í upphafi bankakreppu - og hvaða lög þeir séu að brjóta á okkur í alþjóðarétti með því að beita okkur kúgunum í neyðarstöðu....   reyna að kúga okkur til að láta þjóðþing okkar (Alþingi) samþykkja skuldbindingar sem við eigum ekki að samþykkja....

Ég skora á þig að ná um þetta þverpólitískri sátt - Icesave málið í þriðju viðræður um samning og leitað verði til Evu Joly til að  leiða viðræðurnar

Kristinn Pétursson, 29.11.2009 kl. 12:09

5 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Það sem er sorglegast við þetta icesave mál er að farið er í viðræður með skottið milli lappanna og undir þeim formerkjum að ekki megi styggja ESB - því við ætlum að sækja um aðild og það sé svo svakaleg tímapressa á aðildarumsókn...

Öll samningsstaða er því gefin upp á bátinn, í tvígang, þrátt fyrir að forsendur kröfunnar um að við eigum að borga þetta allt séu í besta falli hæpnar!  Ótrúlegt!!!

Ég næ ekki upp í nef mér yfir þessum gengdarlausa pólitíska aumingjaskap sem hefur einkennt öll samskipti íslenskra stjórnvalda í garð erlendra stjórnvalda og stofnana (AGS) undanfarið ár. Út með allt þetta lið og inn með utanþingsstjórn.

Haraldur Rafn Ingvason, 29.11.2009 kl. 13:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband