Óábyrg stjórnarandstaða að draga stjórnarflokkana á asnaeyrunum.

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur ætla ekki að samþykkja eitt eða neitt. Þeir ætla að keyra þetta mál út í horn í þeirri von að það felli ríkisstjórnina. Það gæti vel verið að þeim takist það því mér finnast sumir stjórnarliðar ekki höndla þetta mál.

Fjárlaganefnd hefur nú haft málið vikum saman og það er nákvæmlega sama hljóðið í stjórnarandstöðunni eins og var í upphafi.

Nú er kominn tími til að höggva á þennan hnút og ef er einhver dugur í ríkisstjórnarflokknum þá hætta þeir að láta hrunflokkana draga sig á asnaeyrunum.

Þeir stunda blekkingastjórnmál þar sem þeir þykjast til í málamiðlanir og samstarf en það eina sem þeim gengur til er að þjóna flokkshagmunum því þá langar svo sannarlega til að komast til valda á ný til að geta stýrt atburðarásinni sem er farin að valda þeim verulegum vanda og áhyggjum.


mbl.is Efast um alvöru þingmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er ekki rétt munað hjá mér, Jón er ekki meirihlutastjórn við völd, hvað ertu að láta stjórnarandstöðuna angra þig ?

Ágúst J. (IP-tala skráð) 10.8.2009 kl. 15:30

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Er ekki Æsseif málið hjá ríkisstjórninni?

Sigurður Þórðarson, 10.8.2009 kl. 15:57

3 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Nei... í fjárlaganefnd.

Veit það ekki Ágúst.

Jón Ingi Cæsarsson, 10.8.2009 kl. 17:00

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

ríkisstjórnin er í meirihluta í fjárlaganefnd eins og í öllum öðrum fastanefndum þingsins - það hlýtur því að vera á ábyrgð ríkisstjórnarinnar hve illa gengur að finna samhljóm hjá þeim? annars þá hef ég ekki séð annað að það sé verið að reyna til þrautar að koma með raunverulegar sameiginlegar lausnir - þær stranda bara alltaf á formanni og varaformanni nefndarinnar sem þynna út allar tillögurnar út ,svo ekkert er eftir af þeirri góðu vinnu sem hið þverpólitíska bandalag hefur unnið af mikilli samviskusemi saman... þetta er því afar ósanngjörn færsla - bæði Borgarahreyfingin og Framsókn hafa sent frá sér yfirlýsingar þess efnis að það verði ekki gerð atlaga að stjórninni þó icesave falli...

Birgitta Jónsdóttir, 10.8.2009 kl. 18:01

5 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Birgitta... ég reikna með að stjórnarliðar ætli sér ekki að afgreiða frá nefndinni átlit sem fellir samninginn og setur málið allt á byrjunarreit. Það er það sem hin óábyrga stjórnarandstaða er að leggja til....

Jón Ingi Cæsarsson, 10.8.2009 kl. 18:49

6 identicon

Er enginn samhljómur í þingmönnum Bhr? Einn segir þetta á ábyrgð ríkisstjórnarinnar en annar að málið sé þverpólitískt.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 10.8.2009 kl. 20:04

7 Smámynd: Víðir Benediktsson

Það er alveg drepfyndið að kenna stjórnarandstöðunni um ef stjórnin er búin að gera upp á bak en það er svo sem eftir Samfylkingunni, hún hefur aldrei fundið til ábyrgðar.  Annars var Jóhanna að gefa í skyn að Sjálfsstæðisflokkurinn væri kostur í stöðunni ef VG væri með múður. Það kemur manni ekkert á óvart lengur.

Víðir Benediktsson, 10.8.2009 kl. 20:21

8 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Víðir... þú verður að fara að fægja kristalkúluna þína, skyggnið er að verða lélegt.

Jón Ingi Cæsarsson, 10.8.2009 kl. 20:33

9 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ég ætla að bætast í þann hóp þeirra  manna sem spyr, hversvegna fer Jóhanna ekki út og talar beint við Gordon Brown ?

Ég orðinn mjög þreyttur því að Jóhanna er alltaf að gefa það í skyn að stjórnarslit verði ef þetta verði ekki svona eða hinsegin

Ef ríkisábyrgð á Icesave verður ekki samþykkt er það eingöngu vegna sundrungar hjá stjórnarflokkunum - það er klárt mál

Óðinn Þórisson, 10.8.2009 kl. 20:36

10 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Hvað veist þú um nema hún hafi þegar gert það..? Reikna varla með að það væri tilkynnt meðan málið er í þinglegri meðferð og ekki komið til baka til framkvæmdavaldsins.

Jón Ingi Cæsarsson, 10.8.2009 kl. 20:39

11 Smámynd: Víðir Benediktsson

Það er allt svo mikið leyndó núna hjá þessari "norrænu velferðarstjórn".

Víðir Benediktsson, 10.8.2009 kl. 21:29

12 identicon

Ég er nú farinn að efast um að það séu  " velferðarkratar "  við stjórn landsins í dag. Frekar að þeir líkist frekar " frjálshyggjukrötum" ekki norrænum að vísu. 

Ágúst J. (IP-tala skráð) 10.8.2009 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 818038

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband