Þegar siðblindan verður algjör.

Ég er viss um að frjálshyggjudrengjunum í Sjálfstæðisflokknum þótti sjálfsagt að fá aura hjá fyrirtækjum. Allir flokkar fá einhverja styrki frá fyrirtækjum og einstaklingum.

Það sem gerist aftur á móti hjá Sjálfstæðismönnum að þeir vita ekki hvar hin siðlegu mörk liggja. Allt valdatímabil flokksins frá 1991 - 2009 voru þeir að hyggla hinum ríku á kostnað venjulegs fólks.

Skjólstæðingar þeirra voru þeir fáu ríku og auðugu og gerir flokksins miðuðu margar að því að gera þessum hópi lífið léttara. Skattar voru lækkaðir, eftirlitsstofnanir voru veiktar, ríkisfyrirtæki voru seld flokksgæðingum á slikk og svona mætti lengi telja. Flokksgæðingar fengu lykilstöður í þjóðfélaginu, seðlabankastjórar, dómarar, ráðuneytisstjórar o.m.fl.

Þegar kom svo að því að hin siðlegu mörk í fjárveitingum og styrkum brustu þótti þeim það bara sjálfsagt... bara passa að enginn vissi af því. Ég er hræddur um að marg óhreint leynist enn undir steinum og það styttist í að þeim verði velt við.


mbl.is „Það logar allt stafnanna á milli“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Niður með Sjálfstæðisflokkinn, þetta krabbamein í íslensku samfélagi! Svo elskaði Geir Sjálfstæðisflokkinn að hann gaf æruna svo flokkurinn fengi eilíft líf.

Valsól (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 15:43

2 identicon

 Hvað á að gera við Sjálfstæðisflokkinn?

Það er eðlilegast að leggja flokkinn niður og láta eigur hans renna til fátækra fórnarlamba arðránsstefnu flokksins.

Sjálfstæðishúsið verði jafnað við jörðu og gerður minningarlundur á staðnum og þar reist minnismerki um "Helför" íslenska efnahagskerfisins.
Kauphallahúsið sem er staðsett í nágrenni minningarlundsins má gera að safnahúsi.
Þar verður haldið til haga glæpum "Flokksins" gagnvart þjóðinni og framtíða þegnum landsins.
Landráð, afsal á verðmætum og landgæðum til spillingarafla og erlendra auðhringa.
Spilling í stjórnsýslu, mútuþægni, ofbeldi og valdníðsla gagnvart þegnunum etc.

Tilgangur safnsins verður að varðveita vitneskjuna um óhæfuverkin til að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig.

Þeim flokksmönnum Sjálfstæðisflokksins sem voru meðvirkir og er hugsanlega hægt að bjarga verði gefinn kostur á enduhæfingu til að aðlagast lýðræðislegu og réttlátu þjóðfélagi.
Hinum "forhertu" og "seku" sem ekki er við bjargandi verður boðið upp vist í frískandi umhverfi á Litla Hrauni.
Þar má binda vonir við að hreint sjávarloftið og skapandi iðjuþálfun leiði þá til betri vegar með frelsun og iðrun synda.

Jón (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 15:49

3 identicon

Hinir flokkarnir eru bara að reyna fá fólk til að hugsa um annað enn vanhæfni núverandi ríkisstjórnar.

Hvað er bjóða upp margar íbúðir og henda fólki á götuna samkvæmt ósk núverandi ríkisstjórnar

Hvað eru margir búnir að missa vinnuna samkvæmt ósk núverandi ríkisstjórnar

Hvað eiga margir eftir að tapa fyrirtækjum sínum samkvæmt ósk núverandi ríkisstjórnar

Hvað eru margir búnir að tapa sparifé sínu samkvæmt ósk núverandi ríkisstjórnar

Hvað eru margir búnir að tapa Hlutabréfum og Stofnfárbréfum samkvæmt ósk núverandi ríkisstjórnar

Hvað þurfa margar kynslóðir íslendingum til að borga skuldir gerðar samkvæmt ósk núverandi ríkisstjórnar

Hvað hafa mörg fyrirtæki tapað peningum í gjaldeyrisviðskiftum samkvæmt ósk núverandi ríkisstjórnar

Hvað er búið að eyðileggja mikið af fasteignum keyptum af bönkunum erlendis

samkvæmt ósk núverandi ríkisstjórnar

Hvað er búið að skemma Baug peningamaskínuna mikið samkvæmt ósk núverandi ríkisstjórnar

Hvað er búið að eyðileggja mikið trúleika íslenskt fjármálakerfis samkvæmt ósk núverandi ríkisstjórnar

Hvað á að bulla mikið um Evruna án þess að tala um hundruð milljarða sem þarf að borga árlega ofl samkvæmt ósk núverandi ríkisstjórnar

Hvað á þjóðinn að gjalda vegna lélegrar ríkisstjórnar

það þarf að hreinsa út á alþingi .. Fá bara nýtt fólk inn ekki útbrunnið eða ofmenntað

með enga starfsreynslu..

zippo (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 19:12

4 Smámynd: Páll Jóhannesson

Finnist forystusveit Sjálfstæðisflokksins ástæða til að skila þessum aurum til að hreinsa eitthvað til hjá sér verður það marklaust nema þeir skili peningunum með vöxtum. Varla ætla þeir að hirða vextina, eða hvað?

Páll Jóhannesson, 10.4.2009 kl. 00:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 818069

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband