Sjálfstæðismenn reyna allt til tefja endurreisn.

Sjálfstæðisflokkurinn sló skaldborg um Davíð Oddsson í Seðlabankanum. Seðlabankinn og bankastjórarnir voru rúnir trausti og Samfylkingin gerði kröfu um að þar yrði hreinsað til og trúverðugleiki endurheimtur.

En Davíð Oddsson stjórnaði Geir Haarde þannig að ekkert gekk með það eins allir vita. Eitt af stóru málunum sem veltu síðustu ríkisstjórn.

Síðan lagði flokkurinn sig fram við að tefja seðlabankafrumvarpið og fékk meira að segja framsóknarmann í lið með sér við þá iðju um stund. Nú er frumvarpið orðið að lögum, Davíð og Eiríkur farnir og komin nýr seðlabankastjóri sem talinn er afar hæfur.

En hvað gerist. Sjálfstæðismenn eru enn tilbúnir til að tefja fyrir endurreisn íslensks efnhagslífs, nú með að gera tímabundna ráðningu að blóraböggli. Þó svo það eigi ekki að skipta máli hér er það samt umhugsunarvert að ekki megi skipa útlending sem seðlabankastjóra. Það má samkvæmt stjórnarskránni ráða óhæfan íslending en ekki erlendan sérfræðing en það er önnur saga.

Það sem máli skiptir og menn ættu að taka eftir. Sjálfstæðismenn hafa lagt sig fram af öllum mætti til að tefja að uppbygging efnahagslífs geti hafist. Það gera þeir af  því flokkshagur er æðri þjóðarhag. Ég var lengi efins um að það ætti að slíta síðasta stjórnarsamstarfi en eftir að það gerðist og ég hef fylgst með vinnubrögðum og atferli Sjálfstæðismannanna á þingi er ég orðinn sannfærður um að það var rétt.

Það eru flokkshagsmunir og hagsmunir skjólstæðinga Sjálfstæðisflokksins sem ráða för á þeim bænum en ekki þjóðarhagur og þjóðarhagsmunir.


mbl.is Þarf að skoða málið betur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sjálfstæðisflokkurinn er  hópur landráðamanna sem hefur gert þjóðina
gjaldþrota. Fram á síðustu stund reyna þeir að valda sem mestum skaða og
eyðileggja framtíð þjóðarinnar.

David ‘de bankrover’ "bankaræninginn"

http://www.volkskrant.nl/economie/article1155890.ece/David_de_bankrover_moet_opstappen

http://www.icenews.is/index.php/2008/10/13/richard-portes-analyses-the-shocking-errors-of-icelands-meltdown/
 

Jón (IP-tala skráð) 28.2.2009 kl. 08:37

2 identicon

Til hvers á að halda stjórnlagaþing núna? Það á hvort eð er ekkert að fara eftir stjórnarskránni virðist vera.  

Gulli (IP-tala skráð) 28.2.2009 kl. 12:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband