Flokkur í upplausn.

Framsóknarflokkurinn er rjúkandi rústir einar. Reykjavíkurfélagið hefur verið yfirtekið af nýskráðum einstaklingum sem gerðir eru út af formannsframbjóðenda og gamla forustunni gefið drag í afturendann. Í dag gekk fyrrum þingmaður flokksins, Bjarni Harðarson endanlega úr flokknum og kom fæstum á óvart.

Í gær gekk fyrrum framsóknarmaður, Guðmundur Steingrímsson aftur í Framsóknarflokkinn eftir skamma viðdvöl í Samfylkingunni. Hætt er við að þeim ágæta dreng bregði í brún þegar hann áttar sig á hverskonar flokkur Framsóknarflokkurinn er orðinn eftir ekki lengra fráhvarf en þessi fáeinu misseri sem hann hefur verið annarsstaðar.  Hætt er við að vinnbrögð og lýðræðisást Devil Framsóknarmanna sé fjarri því að hugnast Guðmundi.

Það má mikið breytast til að þessi görspillti helmingaskiptaflokkur öðlist traust kjósenda. Framsóknarmenn tala feitt um endurreisn flokkins og endurheimt trausts. Hver getur treyst flokki sem hefur þá vinnu með að vega hvern annan í skefjalausri valdabaráttu og bræðravígum

Framsóknarflokkurinn er búinn að vera. Hann gæti hugsanlega náð sér á einhverjum árum eða áratugum en mér er til efs að flokkur sem hefur ekki hugsjón og ekki strefnu geti orðið nokkuð. Framsóknarflokkurinn nærðist á SíS, Búnaðarbankanum, kaupfélögunum og síðar auðmönnum sem auðguðust í gegnum tengsl sín og fyrirgreiðslu í Framsóknarflokknum. Ekkert af þessu er eftir og því er endurreisn þessa flokks nánast vonlaust verk og ekki hjálpar að horfa upp á þessu ótrúlegu atburðarrás og óheiðarleika sem við sjáum gerast þessa dagana.


mbl.is Fjandsamleg yfirtaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Finnbogason

Er hér átt við að fjandsamleg yfirtaka á flokkseigendafélaginu hafi átt sér stað?

Sævar Finnbogason, 7.1.2009 kl. 20:12

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Líklega... að einfaldur meirihluti sigri á löglegum fundi er kallað fjandsamleg yfirtaka sýnir virðingu manna fyrir lýðræði ... eða þannig.

Jón Ingi Cæsarsson, 7.1.2009 kl. 20:16

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ef reglur flokksins leyfa þetta er ekkert við þessu að segja, menn verða bara að bíta í súrt. Nú á meðan atkvæðin verða ekki mun fleiri en fundarmennirnir eins og á til að gerast hjá sumum flokkum verður þetta að teljast í lagi.

Víðir Benediktsson, 7.1.2009 kl. 21:27

4 identicon

Fjandsamleg yfirtaka er túlkuð þannig að safnað er nægum fjölda manna og skráðir í félagið, þannig er hægt með lítillri fyrirhöfn ná völdum í fámennu félagi, líkt og skipperinn segir.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 09:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 818038

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband