Íslenska stjórnmálamenn skortir sjálfsgagnrýni... líka Steingrím J.

Aldrei slíku vant er ég sammála Steingrími J Sigfússyni.

"Þótti honum skorta á heilbrigða sjálfsgagnrýni, enda væri endalaust hamrað á því að kreppan hér á landi kæmi frá útlöndum. „Höfuðábyrgðin á því sem hefur gerst á Íslandi hvílir á herðum Íslendinga sjálfra,“ sagði Steingrímur en viðurkenndi að hinar alþjóðlegu þrengingar hefðu gert illt verra."

Það hafa allir gott af sjálfsgagnrýni og það liggur í orðsins hljóðan... rýna til gagns.

Að mínu viti ætti Steingrímur J sjálfur að taka sig á orðinu og kíkja í eiginn barm. Ekki veitir af.


mbl.is Skortur á sjálfsgagnrýni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Enn einn vel rökstuddur og gáfulega skrifaður pistill af þinni hálfu Jón. Furðulegt að Samfylkingin vilji ekki hafa þig í framvarðasveit sinni, jaa segi nú ekki meir.

Rosaleg er minnimáttarkennd þín gagnvart honum Steingrími, ég hefði þessa kennd líka ef ég væri í þínum sporum.

Arnar Gunnarsson (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 12:05

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Arnar.... ég hef ekki minnmáttarkennd gagnvart Steingrími.... þekki vinnubrögð og aðferðir hans allt of vel til þess. Hann er búinn að vera þingmaður í heimakjördæmi mínu í aldarfjórðung.

Grjótkast úr glerhúsi er það sem hægt er að segja um þann ágæta mann. Annars ... þarf nokkuð að rökstyðja það sérstaklega að íslenska stjórnmálamenn skorti sjálfsgagnrýni.... eru ekki allir sammála um það ? Til þess vísar þessi örsmái pistill.... og þar á ég við þá alla.... líka Steingrím

Af hverju ertu svona pirraður Arnar ? 

Jón Ingi Cæsarsson, 30.10.2008 kl. 12:28

3 identicon

Er alls ekki pirraður. Skil bara ekki þessa áráttu gagnvart Steimgrími. Þið kratarnir bara viljið ekki skilja að þegar Allaballinn og Alþýðuflokkur sameinaðist þá vildu ekki allir verða kratar.

Sjálfur er ég Eyfirðingur og fíla ég hann sem og hina og þessa úr hinum og þessum flokknum.

ArnarG (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 12:36

4 identicon

Merkilegt nokk, þá tek ég undir með Grími að sjallinn ætti aðeins að skoða sjálfsbringuna. Nú síðast poppar upp einkennileg skoðun dómsmálaráðherra á hugtakinu vanhæfi.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 13:00

5 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Skil ekki Arnar.  Það má ekki taka undir með Steingrími, þá fer hann í fýlu.  Mér fisnnst Steingrímur hafa svo margt gott til málanna að leggja.  Það hlýtur þó að rökræða orða hans, þau þola það, ....  stundum.

Jón Halldór Guðmundsson, 30.10.2008 kl. 15:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband