Nýr leiðtogi breytir engu.

Reykjavíkurvígi Sjálfstæðisflokksins virðist fallið saman. Nýr leiðtogi tók við þegar könnunin var hálfnuð en hún stóð frá 2. júní til 22. júní. Maður hefði haldið að við þá umræðu og breytingu hefði Sjálfstæðisflokkurinn tekið kipp upp á við.

En að Sjallar mælist með 27 % þýðir að ef inni í því sé kippur uppávið hafa þeir verið komnir verulega neðarlega.

Þó held ég að Hanna Birna sem nýr leiðtogi breyti litlu ef þá nokkru. Hún er hluti af því mistakateymi sem kom flokknum í þessa stöðu og ber á því fulla ábyrgð. Ég held að vera hennar í oddvitastóli breyti engu hvað varðar fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Borgarstjórnarflokkurinn gerði langt upp á bak og það næst ekki af þó reynt sé að hnýta bleikar slaufur yfir það sem þangað fór.

Samfylkingin og Dagur B eru á bullandi flugi og það sýnir best hversu mikla virðingu Dagur hefur fengið fyrir störf sín sem borgarstjóri í þessa 100 daga sem það stóð. Ég held satt að segja að Reykvíkingar og stjórnmálamenn í Reykjavík ættu að skoða þessa stöðu, og endurskoða .... þó ekki væri nema af virðingu við borgarbúa.


mbl.is Samfylkingin fengi meirihluta í borgarstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óðinn Þórisson

Yfirlýsing dbg fyrir kosningar að hafna alfarið samstarfi við sjálfstæðisflokkinn á þessu kjörtímabili setti í raun 6% og 10% mennina í oddaaðstöðu. Það er enginn möguleiki að mynda annan meirihluta á þessu kjörtímabili. Ef þú telur að svo sé hefði ég gaman að heyra þína tillögu.

Óðinn Þórisson, 27.6.2008 kl. 19:29

2 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Bara snilld að setja Ólaf doktor í oddaaðstöðu. Þetta gerir tvennt: Fer langt með að þurrka út "frjálslynda" fylgið í Reykjavík. Kemur sjálfstæðisflokkunum niður fyrir 30 prósentin.

Það var sjálfstæðisflokkurinn, en ekki einhver annar sem bauð 10 prósent manninum borgarstjórastólinn. Þarf ekki að reyna að kenna Degi um það.

Jón Halldór Guðmundsson, 28.6.2008 kl. 00:53

3 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Ég reikna varla með að Ólafur hafi áhuga á að sitja áfram þegar borgarstjóratímabili hans lýkur eftir nokkra mánuði... þá fer hann í veikindaleyfi út kjörtímabilið og nýr og starfhæfur meirihluti verður myndaður án Sjálfstæðisborgarfulltrúanna misheppnuðu..... er þetta ekki góð tillaga ??

Jón Ingi Cæsarsson, 28.6.2008 kl. 01:34

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ég held að það væri ekki góð lausn að borgarfulltrúar sf komi að aftur að stjórn borgarinnar á þessu kjörtímabili.
Þeir fengu sína 100 daga, tókst ekki einu sinni að gera málefnasamning.
100 daga meirihlutinn sprakk í loft upp vegna þess að MS samdi gjörsamlega af sér og það var hin raunvörulega ástæða að þegar ÓFM kemur aftur til starfa þá voru stefnumál F-listans hvergi á dagskrá enda hafði hún löngu yfirgefið öll stefnumál F-listans og var eingöngu að leita að stól fyrir sig.
Kanski má segja með þessa skoðanakönnun sf að sf er að toppa á kolvitlausum tíma, kosningar eru ekki fyrr en eftir um 2.ár.

Óðinn Þórisson, 28.6.2008 kl. 09:55

5 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Meirihluti borgarbúa eru ósammála þér...

Jón Ingi Cæsarsson, 28.6.2008 kl. 13:23

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Meirihluti borgarbúa kaus þessa 2 flokka í síðustu kosningum  svo sjáum við til eftir 2 ár hvaða dóm fólk fellur þá en til hamingju með að vinna skoðanakönnun borgaða af ykkur sjálfum.

Óðinn Þórisson, 29.6.2008 kl. 10:32

7 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

ERt þú að halda því fram að Félagsvísindastofnun falsi niðurstöður Óðinn....þetta var dapurt innlegg. Fólk kaus borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins fyrir tveimur árum af því það vissi ekki hvað beið handan hornsins....nú hefur komið í ljós fullkomin vanhæfni þeirra til stjórnunar.

Jón Ingi Cæsarsson, 29.6.2008 kl. 14:47

8 Smámynd: Óðinn Þórisson

Hvernig voru spurningar orðaðar ?

Óðinn Þórisson, 29.6.2008 kl. 18:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 818055

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband