Döpur Formúla

Ég hafði mjög gaman af Formúlu hér fyrir nokkrum árum. Mikið fjör, fullt af uppákomum, bilunum, framúrökstrum og sprungnum vélum. En þetta hefur breyst og þessi kappakstur er að verða heldur þurr skemmtan. Það liggur við að úrslit ráðist í tímatökum. Svo er bílunum stillt upp og svo aka menn nokkra tugi hringja í halarófu og reyna lítið eða geta ekkert reynt.

Svo ráðast úrslit í dómssölum meira og minna og nú eru úrslit ráðin í keppni bílasmiða eftir að öll stigin voru dæmd af MacLaren.

Þetta er að verða álíka spennandi og horfa á leikfangalest aka hring eftir hring á teinum. Ég er sem sagt hættur að nenna að horfa á þetta sjónvarpsefni. Lengi hélt maður í vonina að þetta lagaðist en því miður...ekkert spennandi lengur.

Svo skilst mér að sjónvarp allra landsmanna hafi misst sýningarréttinn á þessu efni og það sé á leið annað. Líklega endar með að ríkisstjórnvarpið heldur íslensku glímunni og svo má skoða bobbsleðakeppnir í Austurríki. Það virðist sem íþróttadeild þessara ágæta hafi endanlega tapað samkeppninni við hinar stöðvarnar.


mbl.is Öruggur sigur hjá Räikkönen og yfirburðir Ferrari miklir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Það er líka þónokkuð af kvennaknattspyrnu og frjálsum íþróttum. Ég er mikill íþróttaáhugamaður og ekki síst fótboltabulla. Hins vegar er bara ákveðinn léttir að hafa ekki keypt áskrift að enska boltanum. Það er ekki hollt að gera sig háðan sjónvarpsglápi.

En ég mun sakna Formúlunnar samt. Gunnlaugur Rögnvalds er algjör súper sjónvarpsmaður og gerir þetta alltaf spennandi.

Jón Halldór Guðmundsson, 17.9.2007 kl. 08:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 818038

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband