Galnar hugmyndir í boði Vinstri grænna.

Andrés Ingi Jóns­son, þingmaður Vinstri grænna, tel­ur að kjötskatt­ur gæti verið rök­rétt skref, bæði til þess að bregðast við áhrif­um kjöt­neyslu á heilsu­far og sem liður í aðgerðum gegn lofts­lags­breyt­ing­um. Þetta sagði þingmaður­inn á Face­book-síðu sinni á föstu­dag, en nán­ar var rætt við hann í kvöld­frétt­um Stöðvar 2 í kvöld.

Eins og sumir vita þá eru flestir kjarasamningar í landinu lausir og viðræður ganga hægt eða ekkert. Framundan eru síðan tugir samninga lausir í mars.

Hvað aðhefst ríkisstjórnin til aðstoðar þess að leysa kjaradeilurnar ?

Nákvæmlega ekkert.

Þessi stað dynja ýmsar skattahugmyndir á landsmönnum þessa dagana.

Framsóknarsamgönguráðherrann boðar miklar álögur á vegfarendur á völdum svæðum, skattur sem mun leggjast þungt á þá sem lægstar hafa tekjurnar. Ljóst að ef þessar hugmyndir ná fram að ganga þá fara allar þær launahækkanir sem SA hefur tilkynnt að séu boði farnar í það skattabál og vel það.

Í kvöld hvað svo við vein úr herbúðum VG þaðan sem ekkert hljóð hefur borist lengi enda virðast þingmenn þess flokks falla eins og flís að rassi fjármálaráðherrans.

Nýr skattur í þágu loftlagsmála.

Kjötskattur, skatti sem er ætlað að draga úr neyslu á kjöti með því lagi að gera það dýrara þannig að sumir hafi ekki efni á kaupa og fara að borða annað, væntanlega rófur og blómkál.

Að svona skattahugmynd komi úr ranni VG er hreinlega galið. Forsjárhyggjan kemur kannski ekki á óvart en að enn sé verið að boða skattahækkanir sem leggjast með mestum þunga á heimilin og þá sem minnst hafa.

Kannski finnst þingmanninum í lagi að fátækt fólk geti ekki veitt sér sama munað og þeir sem meira hafa þá á hann að segja það beint út. Ekki fela það í óljósri hugmynd um innlegg í loftlagsmál.

En sannarlega er þetta það vitlausasta sem ég hef heyrt á þessu ári enda ekki nema 6. janúar.

Meðan þingmenn stjórnarinnar keppast við að lýsa nýjum álögum á landsmenn brosa útgerðarmenn hringinn eftir fjögurra milljarða gjöf valdhafanna í formi lækkunnar veiðigjalda.

Viss um að einhverjum stjórnarþingmanninum dettur eitthvað gáfulegt í hug til að toppa þessa vitleysu sem Andrés Ingi Jónsson ræddi í fréttum í kvöld.

 

 


mbl.is Viðrar hugmynd um kjötskatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Við erum nánast aldrei sammála um nokkurn skapaðan hlur Jón, en get tekið undir allt sem þú segir að þessu sinni. Hvað næst? Skyrskattur, mjólkurskattur og þar fram eftir götunum? Af hverju ekki hreinlega skjóta bara alla bændur og hvetja fólk til að borða gras?

 Þetta lið lifir í einhverju öðru sólkerfi. Sama hvaða fjandans flokki það tilheyrir.

 Góðar stundir, með áramótakveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 7.1.2019 kl. 01:00

2 identicon

Tek undir með seinasta ræðumanni og nafna mínum, það er sjaldan sem ég er sammála þér Jón, en þarna hittirðu sko naglann á höfuðið all rækilega.

Halldór (IP-tala skráð) 7.1.2019 kl. 08:18

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Fátæku fólki er auðvitað ekki hollt að graðga í sig steikum. Það verður latt og frekt af þeim og fer í kjaraviðræður embarassed

Þorsteinn Siglaugsson, 7.1.2019 kl. 09:30

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Tek undir með Halldórunum. Þarna hittir þú Jón alvörlega í mark. Með nýárskveðju.

Sigurður Kristján Hjaltested, 8.1.2019 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 818070

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband