Formaður VG og meirihluti þjóðarinnar ósammála.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist bera fullt traust til allra ráðherra í ríkisstjórninni. Þetta kom fram í máli forsætisráðherra við upphaf þingfundar en það var Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar og formaður stjórnskipunarnefndar, sem spurði hvort dómsmálaráðherra nyti trausts hennar.

Formaður VG ber fullt traust til ALLRA ráðherra, líka þeirra sem eru með buxurnar á hælunum.

Dæmdur dómsmálaráðherra er undir verndarvæng forsætisráðherra og Vinstri grænna.

Ljóst að stór meirihluti þjóðarinnar er ekki á sama stað og Katrín Jakobsdóttir sem verður að segja þetta.

Það er gjaldið fyrir samstarf við íhaldsflokkana að halda kjafti og vera góður.

Í því er KJ bara skrambi góð og enn fylgir grasrótin henni í sömu blindu meðvirkninni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þú ættir nú kannski að lesa álit umboðsmannsins. Þar kemur nefnilega fram að hann telur enga ástæðu til að rannsaka málsmeðferð ráðherrans. Hann telur hins vegar fulla ástæðu til að rannsaka málsmeðferð hæfnisnefndarinnar.

Helga Vala Helgadóttir er bara froðusnakkur og hefur aldrei verið annað.

Þorsteinn Siglaugsson, 5.3.2018 kl. 16:47

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Jón Ingi. Kannt þú ekki að halda kjafti og vera góður. Stundum þarf að geta gert það svo hlutir strandi ekki í einhverju veseni. 

Valdimar Samúelsson, 5.3.2018 kl. 17:03

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Á hverju byggirðu þessa fullyrðingu um að "meirihluti þjóðarinnar" sé ósammála? 

Jón Steinar Ragnarsson, 5.3.2018 kl. 17:53

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Helga Vala Helgadóttir fær bara brot af þeirri athygli sem hún þarf.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 5.3.2018 kl. 21:20

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Fullyrðingagleði síðuhafa, í nafni meirihluta þjóðarinnar, dæmir öll hans orð ómarktæk og ómerkileg. Þviílíkur hroki, svo ekki sé meira sagt. Þó algerlega í takt við landsfund flokksins hans, sem gekk aðallega út á það hverja ætti að herja á, af pólitískum andstæðingum og hverjum ætti að hlífa, sökum asnaskapar. Málefnaþurrð af nýju "kalíberi" sem getur varla útlistast öðruvísi en rætni, öfund og skítlegt eðli.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 5.3.2018 kl. 21:31

6 Smámynd: Hrossabrestur

Er þetta ekki örþrifaráð Samspillingarpésa sem skynjar það að flokkurinn hans er á hraðri leið í sorptunnuna?

Hrossabrestur, 6.3.2018 kl. 12:53

7 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Sé að kvarterískvintettin er mættur á vaktina.

Þorsteinn kýs að fara í spor "blaðamannsins" Páls Villhjálmssonar og túlka þar niðurstöður Umboðsmanns á sinn hátt. Þeir sem hinsvegar eru skarpari en skkólabörn sjá hvað Umboðamaður er að fara. Þorsteinn má svo halda sínu fram.

Jón Steinar, spyr. Honum er svarað hér: http://maskina.is/wp-content/uploads/2018/02/2018_02_D%C3%B3msm%C3%A1lar%C3%A1%C3%B0herra_Mask%C3%ADnusk%C3%BDrsla.pdf

Mjólkurbílstjórinn lætur ekki að sér hæða. 

Halldór mætir svo hér og botnar Jón Steinar en gerir betur og færir umræðuna yfir á Samfó, klassíker hér á ferð eða eins og bændur gera á vorin, hlaða skítadreifarann. Mögulega til að fá athygli af mjög vondum Domsmmálaráherra dreift enn frekar. En við látum ekki svona gúbba slá okkur út af laginu. 

Að lokum, Ei-Þór í Mai. 

Sigfús Ómar Höskuldsson, 6.3.2018 kl. 12:57

8 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Sigfúsi Ómari til upplýsingar, hlaða bændur skítadreifarann á vorin með von um betri sprettu. Skítur getur nefnilega haft býsna góð á hrif á sprettu, ef ekki er á sama tíma illgresisfræi plantað með. Það fræ virðist það eina sem rúmast í þínum skítadreifara Sigfús samfylkingargúbbi.

Halldór Egill Guðnason, 7.3.2018 kl. 01:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 64
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband