Gamla ljónið orðið tannlaust.

2017 gamla ljóniðSteingrímur J. Sigfússon segir VG ekki skorast undan ábyrgð þrátt fyrir að áherslur VG og Sjálfstæðisflokksins séu fjarlægar.

( viðskipablaðið 2016 )

______________

Steingrímur var löngu farinn að horfa til Sjálfstæðisflokksins með samstarf. Þessi grein birtist í Viðskiptablaðinu fyrir einu ári þegar Sjálfstæðisflokkurinn var að munstra Bjarta og Viðreisn á Valhallarbátinn.

Steingrímur sat þar hjá og horfði vonaraugum til Bjarna. Það gekk svo eftir núna, Bjarni stökk á Grím og landaði honum. Kostaði aðeins meira en síðast en hvaða máli skiptir það þegar maður ræður hvort sem er öllu.

Gamli sósialistinn hefur nú verið bundinn við bryggju í forsetastól Alþingis, fær væntalega málverk af sér og væntalega verður hann ekki í framboði næst.

Þetta segja kunnugir að hafi verið draumur gamla baráttumannsins, fá fallegt og þægilegt sæti í ellinni og vera alltaf í mynd á Alþingisvefnum.

Það er sannarlega búið að draga allar vígtennur úr gamla ljóninu, það hefur fengið mjúkt og þægilegt sæti í horninu hjá Sjálfstæðisflokkunm, öróttur og móður eftir áratuga baráttu við íhaldsöflin.

If you can"t beat them, join them. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Alveg eiga Vinstri Græn risa-stórt hrós skilið að hafa sagt Samfylkingunni að fara fjandans til.

Hrossabrestur, 17.12.2017 kl. 14:42

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Á Steingrímur skilið svona eftirmæli Jón?  Fyrir hvað stóð Steingrímur J. sem stjórnmálamaður? Margir myndu eflaust svara þeirri spurningu vitlaust. Rétta svarið er nefnilega að Steingrímur hefði átt að vera kyrr í Framsóknarflokknum. Þrátt fyrir alla lærðu frasana og sýndarróttæknina þá brást hann aldrei ungmennahugsjón 20.aldar framsóknarmanna þegar á reyndi. Baráttan snérist bara um hann sjálfan og sviðsljósið. Eitt orð dugir til að lýsa Steingrími.  Einfari.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 17.12.2017 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 818038

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband