X - S í uppsveiflu.

22310265_10156525680034918_2727696752113289211_nÞað er mikið rót á skoðanakönnunun þessa dagana.  MMR í dag.

Nýr flokkum SDG virðist ætla að ganga nærri gamla Framsóknarflokknum sem mælist afar lágt þessa dagana. Þó hef ég trú á að þeir nái vopnum sínum og jafni þennan leik Framsóknarmanna sem nú stendur sem hæst.

VG dettur úr hæstu hæðum rétt við 30% markið niður undir 20% sem flestum þætti dágóður árangur á þeim bænum. Reynar trúlegri að mínu mati en 30% sem þeir hafa verið að mælast með.  Kannski er SDG með sitt xemm að höggva þar í?

Sjálfstæðisflokkurinn er að mælast á sama stað og að undanförnu, slefar yfir 20% markið. Það væri áfall á þeim bænum eins og ég hef áður nefnt.

Flokkur fólksins dalar líka á milli kannana, þar gæti þetta endað með að þeir yrðu úti eftir kjördag. Listarnir þeirra eru ekki að skora hátt heyrir maður.

Stóru tíðindin eru að jafnaðarmenn eru að ná vopnum sínum og stökkva í 13% tala sem hefur ekki sést lengi.

Glænýtt fólk með ómengaða sýn jafnaðarmanna hafa birst kjósendum og það fellur í góðan jarðveg.

Frambjóðendur hafa boðað að mannleg gildi og félagshyggja muni ráða för næstu árin.

Það er vel.

Það sem þjóðin þarf er að hér verði til ríkisstjórn og flokkar sem setja manngildi ofar auðgildi.

Það er hin hreina og tæra jafnaðarstefna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 812348

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband