Hækjuhlutverið staðfest ?

Eins og ég hef margsagt að undanförnu mun Framsóknarflokkurinn halda áfram í ríkisstjórn sama hvað tautar og raular ef meirihlutinn héldi. Það virðist sem það sé að ganga eftir þó svo Framsóknarmenn hafi verið með yfirlýsingar til að blekkja kjósendur í aðdraganda kosninganna.

Nú virðist að þetta sé að ganga eftir og Framsóknarflokkurinn, flokkur spillingar og fyrirgreiðslu gangi inn í endanlegt hækjuhlutverk með bros á vör. Mikil er lágkúran. Svo er líklegt að Jón Sigurðsson og Jónina Bjarmars verði ráðherrar utan þings í þannig stjórn. Upp á  okkur er troðið fólki sem hafnað er í lýðræðislegum kosningum.

Framsóknarflokkurinn og ráðamenn þar fótumtroða vilja þjóðarinnar og við stitjum sennilega uppi með þessa óværu því hvað er betra fyrir Sjálfstæðisflokkinn ef fá þæga og góða hækju til að styðja sig við. Framsóknarflokkurinn er móðgun við lýðræðið og við losunum ekki við hann fyrr en hann þurkast upp. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki vandur að virðingu sinni það er ljóst


mbl.is Líklegast að stjórnin sitji áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Björn

Þú vilt sem sagt að Framsókn verði hækja S og VG??  

Guðmundur Björn, 14.5.2007 kl. 07:59

2 Smámynd: Hreiðar Eiríksson

Þetta er skemmtileg umræða.  Vinstri græn og Samfylkingin hafa legið Framsóknarflokknum það á hálsi í mörg ár að hafa "leitt íhaldið til valda" eða "tryggt völd íhaldsins" eða verið "hækja íhaldsins".  Nú er staðan þannig að menn standa andspænis þeim möguleika að mynda vinstri stjórn með fulltingi Framsóknarflokksins.  Mér heyrist að Samfylking og VG hafi ekki áhuga á slíkri stjórn.  Þvert á móti vilja þessir boðberar jafnaðar- og vinstri stefnu keppast sín á milli um að fá að "leiða íhaldið til áframhaldandi valda".  Hækjuhlutskipti Framsóknar virðist því vera það sem vinstrimenn bítast um þessa dagana.  

Hreiðar Eiríksson, 14.5.2007 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 818055

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband