Ferðaþjónustan á ríkisspenanum ?

Vala Val­týs­dótt­ir, sviðsstjóri skatta- og lög­fræðisviðs Deloitte, seg­ir að breyt­ing­ar sem gerðar hafa verið á virðis­auka­skatts­skyldu ferðaþjón­ustu­fyr­ir­tækja muni í ákveðnum til­vik­um skila því að viðkom­andi fyr­ir­tæki muni fá meira úr rík­is­sjóði en þau inna af hendi í formi virðis­auka­skatts.

______________

Ferðaþjónustan græðir á tá og fingri.

Þannig ætti það í það minnsta að vera miðað við þá sprengingu sem allir sjá.

Versta dæmið er Bláa lónið sem haldar inn gríðarlegar tekjur á himinháum inngangseyri. Þarf ekki að skila vsk.

Sauðfjárræktin á Íslandi er á ríkisspenanum.

Stórútgerðin er á ríkisspenanum neð gríðarlegum pólistískum afslætti á veiðigjöldum.

Stóriðjan er á gefins raforku og greiðir lítið sem ekkert til samneyslunar með bókhaldstrixum.

Það kemur því ekki á óvart að ferðaþjónustan sem blómstar sem aldrei fyrr sé einnig á ríkisframlögum í gegnum vsk. kerfið.

Það er ekki undarlegt þó erfiðlega gangi að ná niður skuldum ríkissjóðs og afla tekna fyrir samneysluna.

Erum við alveg í lagi verður manni á að spyrja.


mbl.is Hagnast á ólíkum skattþrepum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

A spena ríkisins hangir margt. Frægast þeirra i heimalinga er sennilega Islanspostur.

Óskar Guðmundsson, 21.7.2015 kl. 08:16

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Jæja Óskar, hver eru framlög ríkisins til Íslandspósts. 

Þeir sem þekkja ekki mál eiga ekki að tjá sig, þeir vera dálítið fávísir að sjá  :-)

Jón Ingi Cæsarsson, 21.7.2015 kl. 09:46

3 Smámynd: Högni Elfar Gylfason

Er ekki fljótlegra að telja upp þá sem EKKI eru á "ríkisspenanum" eins og þú orðar það svo skemmtilega.  Sá listi yrði eflaust mun styttri.  Til að mynda þyrftir þú ekki að setja á hann:  Samfylkinguna (og hina flokkana), óteljandi ríkisstarfsmenn (sem sumir hverjir eru líklega óþarfir), eigendur íbúðahúsnæðis (sem margir hverjir fá vaxtabætur), fólk sem eignast börn (sem fær barnabætur o.fl.), háskólanemar á öllum aldri (sem borga brot af kostnaðinum við skólagönguna en sitja við nám fram á grafarbakkann sumir hverjir) og svo framvegis og svo framvegis.....  ;-)

Högni Elfar Gylfason, 21.7.2015 kl. 11:51

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Undarleg upptalning, svo ekki sé meira sagt. Bláa Lónid, saudfjárraekt og stórútgerdin á ríkisspenanum? Ad vera á ríkisspenanum er ad fá beingreidslur frá ríkinu (okkur) ekki satt? Hraeddur um ad síduhafi thurfi eitthvad ad útskýra mál sitt betur og skilgreina. Svona framsetning og upphrópun, án nokkurs rökstudnings, er ekkert annad en endemis della.

Gódar stundir, med kvedju ad sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 22.7.2015 kl. 05:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband