Minnispunktar fjármálaráðherra.

Auk þess auk­ist skil­virkni virðis­auka­skatt­s­kerf­is­ins til muna, með því að stytta bilið á milli hærra og lægra skattþreps­ins og þannig sé dregið úr hvata til þess að færa vör­ur og þjón­ustu á milli þrepa. Jafn­framt auk­ist jafn­ræði milli at­vinnu­greina við þess­ar breyt­ing­ar.

________________

Í Kastljósi í gærkvöldi ræddi Sigmar fjárlagafrumvarpið við forsætisráðherra. Sérstaklega saumaði Sigmar að ráðherra með hækkaðan virðisauka á matvæli, orku og fleira.

Forsætis gerði lítið úr þessu og sagði þetta órætt og ætti örugglega eftir að taka breytingum í umræðu.

Gaf það eiginlega út að fjárlagafrumvarpið væri lagt fram til skrafs og ráðagerða.

Satt að segja skildi ég ekki ráðherrann langtímum saman, en það er líklega bara mín heimska og misskilningur.

Það var líka að heyra á forsætisráðherra að öll umræðan á þingi og þjóðfélaginu væri eitt stór misskilningur og fæstir virtust skilja hvað fjármálaráðherra væri að meina.

Samkvæmt ráðherranum voru miklar kjarabætur til almennings faldar í frumvarpinu.

Það er ljómandi gott að vita að svo er, og ekki síður að þetta umdeilda frumvarp er bara minnispunktar fjármálaráðherra og þeir lagðir fram til mikilla breytinga og umræðu.

Ef til vill verða gerðar á því breytingar þannig að fátækasta fólkið í landinu fái ekki hausinn mestu hækkanirnar á ofursköttum Sjálfstæðisflokksins. 

Framsóknarflokkurinn og stjórnarandstaðan hljóta að redda því. 


mbl.is Gríðarleg einföldun að afnema heilt gjaldakerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 818069

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband