Efnahagslegt bananalýðveldi.

Seðlabanki Íslands mun í vikunni tilkynna umboðsaðilum erlendra tryggingafélaga hérlendis að gjaldeyrisviðskipti þeirra á grundvelli samninga um meðal annars viðbótartryggingavernd, söfnunartryggingar og sparnað verði stöðvuð. 

____________________

Nú ætlar Seðlabankinn í efnahagslegt stríð við erlend tryggingafélög sem starfa hér á grundvelli EES samningsins.

Á dagskrá er að ráðast gegn lífeyrissparnaði 30.000 íslendinga og neyða þá inn í eingagrunarumhverfi Sjálfstæðis og Framsóknarflokks.

Nú skulu landsmenn éta íslenska kúrinn  hans SDB, núna eru það lífeyrisréttindin sem á að ræna okkur sem viljum nýta okkur að búa í nútíma samfélagi þar sem lífeyrissparnaður er einhvers virði.

Þetta er efnahaglegt hryðjuverk gagnvart fólki sem hefur sparað í fjölda ára í fullu samræmi við þá alþjóðasamninga sem við erum aðilar að.

En seðlabankastjóri sagði okkur og Ísland væri bananalýðveldi þar sem landsmenn allir væru hnepptir í vistarband afturhaldaflanna.

Vænti þess að íslenskir stjórnmálamenn hafi dug og þor til að taka á þessu máli sem er ein grófasta atlaga að fjölskyldum tuga þúsunda landsmanna.

 


mbl.is Stöðvar ólögleg gjaldeyrisviðskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki kenna núverandi stjórnvöldum um. 

Reglurnar eru skýrar og þetta er búið að vera óleyfilegt alveg frá upphafi.  Það stendur skýrum stöfum í reglum Seðlabankans. 

Vinir þínir í Samfylkingunni, þ.á.m. formaðurinn þinn bekenuðu þessar reglur bankans.

Ég er sáttur í dag því verið er að jafna stöðu allra á Íslandi hvað reglur um gjaldeyrishöft varða.

Árni Páll talaði mikið um þjóðaröryggi og gjaldeyrishöft þannig að þú ættir að fagna þessu. 

Stefán (IP-tala skráð) 18.6.2014 kl. 19:09

2 identicon

Það er með ólíkindum að meðan lífeyrissjóðir (almenningur) hafa ekki getað ávaxtað sinn séreignarlífeyrissparnað erlendis hafa einstaklingar getað það í gegnum erlend tryggingarfélög. Þessa mismunun á auðvitað að stoppa þegar í stað.

Yfirlýsingar um að þessi sparnaður sé í hættu er auðvitað bull. Það sem þegar hefur verið sparað með þessum hætti eiga menn áfram erlendis en verða héðan í  frá að sætta sig við að lífeyrissparnaður þeirra eins og annarra sé í íslenskum krónum.

Ástæðan fyrir því að nú er verið að bregðast við þessari mismunun er mikil aukning þeirra sem hafa nýtt sér þessa smugu í höftunum. Það voru auðvitað mistök að leyfa þetta í upphafi en það réttlætir þó ekki að halda því áfram enda ljóst að fjöldinn færi þá ört vaxandi.  

Að sjálfsögðu er þetta brot á EES-samningnum eins og gjaldeyrishöftin almennt. Við erum hins vegar á tímabundinni undanþágu vegna hrunsins og hlýtur sú undanþága að ná yfir slíkan lífeyrissparnað.

Meðan við höfum krónu sem gjaldmiðil verða hér gjaldeyrishöft í einhverri mynd ef ekki á allt að fara til fjandans. Hvenær ætla stjórnvöld að horfast í augu við þessa augljósu staðreynd? Horft til framtíðar snýst valið um úrsögn úr EES eða ESB-aðild og upptöku evru.    

Ásmundur (IP-tala skráð) 18.6.2014 kl. 20:36

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

En þú gleymdir að minnast á það að Seðlabankastjórinn er í boði LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR og það er hann sem hefur verið að draga lappirnar í þessu máli.............

Jóhann Elíasson, 18.6.2014 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 64
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband