Einbeitt áform íhaldsflokkanna að eyðileggja viðræður.

 

Ef rýnt er í stöðuna í samningum um einstaka kafla sem ekki var búið að loka í viðræðum við aðild að ESB er ljóst að Ísland hafði þegar náð fram sérlausnum, undanþágum og/eða aðlögunarfrestum í aðildarviðræðunum. Það leikur heldur enginn vafi á því að um raunverulegar samningaviðræður var að ræða. Þetta er meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum skýrslu Alþjóðamálastofunar um aðildarviðræður Íslands að ESB.

 Einnig kemur fram í skýrslunni að ef aðildarviðræður hefðu haldið áfram hefði að öllum líkindum verið hægt að loka öllum samningsköflum á fyrri helmingi ársins 2013. Þá kemur einnig fram að vari viðræðuhlé við ESB í mörg ár gæti reynst erfitt að hefja samningaviðræður á ný.

_______________________

Æðibunurgangur utanríkisráðherra og Framsóknarflokksins með stuðningi Sjálfstæðismanna hafði þann eina tilgang að eyðileggja það búið var að vinna í aðildarviðræðunum.

Lítilsvirðandi framkoma við þjóðina, sem vill fá að segja sitt og ráða framtíð sinni sjálf.

 


mbl.is Höfðu þegar náð fram sérlausnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Af hverju kláraði ekki fyrri ríkisstjórn þá viðræðurnar fyrst unnt var að klára þær á fyrri helmingi ársins 2013 ?

Alþingiskosningar voru í lok apríl 2013.  Þetta vissu menn og hefðu alveg geta stýrt hraða viðræðna í samræmi við það.   

Björn Kristinsson (IP-tala skráð) 7.4.2014 kl. 09:53

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Gettu einu sinni Björn

Jón Ingi Cæsarsson, 7.4.2014 kl. 09:55

3 identicon

Ég ætla ekki að geta neitt.  Af hverju ekki að svara þá svo einfaldri spurningu ?

Björn Kristinsson (IP-tala skráð) 7.4.2014 kl. 09:57

4 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Lestu skýrsluna, þar kemur skýrt fram hvað olli því.

Jón Ingi Cæsarsson, 7.4.2014 kl. 10:01

6 identicon

Takk fyrir málefnalegar umræður. 

Björn Kristinsson (IP-tala skráð) 7.4.2014 kl. 10:04

7 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Ísland er í sterkri stöðu gagnvart ESB til að semja um að lögsaga landsins yrði skilgreind sem sérstakt fiskveiðistjórnunarsvæði. Embættismenn sambandsins segja sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna ekki eins stífa og látið er liggja að og klæðskerasniðnar lausnir eru algengar. Ljúka þarf aðildarviðræðum til að fá botn í þessi mál.

Jón Ingi Cæsarsson, 7.4.2014 kl. 10:08

8 identicon

Vonandi verður okkur neitað aðild, væri best fyrir alla

Jónas (IP-tala skráð) 7.4.2014 kl. 10:17

9 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Úr skýrslunni:

"Viðmælendur voru meðvitaðir um að íslensk stjórnvöld hefðu viljað sjá hraðara samningaferli, en að öllu samandregnu voru það einkum fimm áhrifaþættir sem hægðu á málinu.

  • Í fyrsta lagi eru aðildarviðræður nú þyngri í vöfum eftir mikla stækkun ESB árin 2004 og 2007, þegar samtals tólf ný aðildarríki bættust í hópinn. Til að mynda hefur sérstakri rýnivinnu verið bætt við sem aðfara að viðræðum. Rýnivinnan lengdi ferlið um eitt ár.
  • Í öðru lagi setti hin alþjóðlega fjármálakrísa strik í reikninginn hjá báðum samningsaðilum með ýmsum hætti, og nægir þar að nefna Icesave-málið til sögunnar.
  • Í þriðja lagi varð skortur á samstöðu innan ríkisstjórnarinnar til þess að tefja fyrir og olli því meðal annars að samningsafstaða var ekki lögð fram í ákveðnum málaflokkum, svo sem í landbúnaðar - málum.
  • Í fjórða lagi olli sú ákvörðun íslenskra stjórnvalda í ársbyrjun 2013 að setja viðræðurnar í „hæga - gang“ fram yfir þingkosningar óvissu hjá ESB um áframhald þeirra og stöðvaði marga ferla í aðildar viðræðunum.
  • Í fimmta lagi olli makríldeilan því að ekki tókst að opna kaflann um sjávarútveg áður en hlé var gert á viðræðunum."

Fyrsta atriðið má rekja til ESB sjálfs, númer tvö til Breta og Hollendinga, og þrjú til fjögur má rekja til vinstristjórnarinnar.

Á öðrum stað í skýrslunni kemur fram að ef Ísland yrði aðili að myntbandalaginu fengið Seðlabanki Íslands leyfi til að prenta Evrur. Sporin hræða í þeim efnum, og raunar dauðskelfa, eftir reynsluna af gengistryggðu viðskiptunum, sem seðlabankinn leyfði bönkunum að stunda í trássi við lög. Með því fyrirkomulagi gerði seðlabankinn prentun á evrum mögulega í gegnum íslenska bankakerfið, en það átti svo eftir að verað ein meginorsök gjaldeyrishaftanna.

Vonandi verða allar góðar vættir til að forða Íslandi og Evrópu frá því að Seðlabanki Íslands byrji aftur að prenta evrur.

Guðmundur Ásgeirsson, 7.4.2014 kl. 14:02

10 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þórbergur Þórðarson vildi meina að við lifðum í „forheimskunarlandinu“. Hefur nokkuð breyst? Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn vil forheimskun á fullu í íslenskt samfélag. Auðveldara er að stjórna og afvegaleiða heimskan lýð en velmenntaðan og gagnrýninn á verk stjórnvalda.

Guðjón Sigþór Jensson, 7.4.2014 kl. 18:45

11 Smámynd: Jón Kristján Þorvarðarson

Talndi um Þórberg Þórðarson. Í "Bréfi til Láru" fullyrti hann að aldrei hefði verið samin svo ómerkileg bók að hún hefði ekki kostað meira andlegt erfiði en stjórn heillar togarútgerðar í 10 ár! Hið andlega erfiði Gunnars Braga Sveinssonar og nokkurra svikula Sjálfstæðismanna raðar sér í fylkingu með stjórnum togaraútgerða...

Jón Kristján Þorvarðarson, 7.4.2014 kl. 19:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband