Frjáls innflutningur á landbúnaðarvörum ?

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að sér leiðist þær „duldu og ekki svo duldu viðskiptahindranir á vörum sem koma hingað til lands.“ Á fundi Amerísk- íslenska verslunarráðsins í morgun sagði hún að þar ætti hún til dæmis við reglur um sérmerkingar og innihald sem takmarki innflutning á ákveðnum vörum og tók fram að hún vildi geta valið hvort hún keypti evrópskt eða amerískt Cocoa Puffs.

_______________________

Vona að henni leiðist jafn mikið þær opinberu viðskiptahindranir sem halda landmönnum í helgreipum fákeppni og einokunar.

Landbúnaðarvörur eru þar efstar á blaði.

Ef Ragnheiði Elínu viðskiptaráðherra er jafn mikil alvara og hún vill vera láta þegar talað er um bandarískt Cocoa Puffs og, þá opnar hún á umræðu að gefa innflutning á vottuðum landbúnaðarvörum frá Evrópu og víðar að frjálsan.

Hún er væntalega farin að ræða það við Framsóknarmenn að styttist í viðskiptahindranir á þeim vörum hverfi, öllum landsmönnum til hagsbóta.

Það væri stóraðgerð í að bæta hag heimilanna að þau fái ódýrari aðgang að alvöru matvöru þó henni sé hugstæðast þetta með ammmerískt Cocoa Puffs í augnablikinu.


mbl.is Vill geta keypt bandarískt Cocoa Puffs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þarna er ég sammála !

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 9.10.2013 kl. 10:25

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Kókópössið er efst á listanum vegna þess að það kom á daginn, kókópössneytendum til mikillar skelfingar, að evrópskt kókópöss er búið til nær eingöngu úr sagi.

En jú, hver vill ekki ódýrari mat frá USA?

Ásgrímur Hartmannsson, 9.10.2013 kl. 16:20

3 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Eins og Ragnheiður Elín, vil ég fá að ráða hvað ég kaupi í matinn. Ef ég fæ aðgang að alvöru matvörum sem ég hef efni á að kaupa, má amerískt Cocoa Puffs fara lönd og leið fyrir mér. Vonandi venst Ragnheiður öðru morgunkorni, þurfi hún að sleppa uppáhalds. 

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 9.10.2013 kl. 16:54

4 identicon

eigum við ekki líka að setja launin á afríkustandard þá mun öll þjónusta verða ódýrari og bændur fá ódýrt vinnuafl ódýra lækna gætum feingið ódýrt vinuafl frá austurlöndum dreisti jóni inga að

hann berjist eins fyrir ódýru vinnuafli einsog ódýrum mavörum

kristinn geir steindórsson briem (IP-tala skráð) 9.10.2013 kl. 20:01

5 Smámynd: Laxinn

Það er ástæða fyrir því að ódýrt kjöt er ódýrt kjöt

Laxinn, 9.10.2013 kl. 21:26

6 identicon

Jæja, ekkert nýtt hér, sjálfstæða fólkið kemur regglulega með svona hugmyndir, en varla loforð -  enda orðar hún þetta bara í dulinni óalvöru um kókópúffs. Sjálfstætt fólk veit samt að það er mikið óráð að hleypa skelfingu í íslenskt landbúnaðarfólk, eða þá vini sína framsækna fólkið eða þá óvini sína græna fólkið.

Ef henni er alvara varðandi það að kaupa flott ameríkupúffs þá held ég að það sé heldur frekar kominn tími á hjónaband sjálfstæðinga og samflykkinga !

Jonsi (IP-tala skráð) 11.10.2013 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 812350

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband