Einsleitur hópur þekktra einstaklinga af höfuðborgarsvæðinu.

Landskjörstjórn hefur tilkynnt hvaða 25 einstaklingar voru kjörnir á stjórnlagaþing. Alls greiddi 83.531 atkvæði eða 35,9%, ógild atkvæði voru 1196 eða 1,4%. Ekki kom til þess, að beita þyrfti lagaákvæðum til að jafna kynjahlutfall kjörinna fulltrúa.

Hér sjáum við svart á hvítu hvaða úrreið landsbyggðin fengi ef landið væri eitt kjördæmi. Sýnist í fljótu bragði að hér séu þrír af landsbyggðinni.

Annars er þetta einsleitur hópur einstaklinga sem hafa verið í sviðsljósinu af ýmsum ástæðum og hinn almenni frambjóðandi sem hafði aðeins það eitt að bjóða að vera venjulegur íslendingur átti ekki nokkurn séns.

Niðurstaðan er því hnotskurn.. einsleitur hópur þekktra einstaklinga af höfuðborgarsvæðinu... með örfáum undantekningum.


mbl.is 25 kjörin á stjórnlagaþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Karl Gauti Hjaltason

Heyr, heyr ...

Karl Gauti Hjaltason, 30.11.2010 kl. 16:46

2 Smámynd: Púkinn

Ég held nú að flestiir hafi kosið á öðrum forsendum en um hvort um höfuðborgar- eða landsbyggðarfólk sé að ræða.

Púkinn, 30.11.2010 kl. 16:53

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

hvað kemur búseta þessu við ?

Óskar Þorkelsson, 30.11.2010 kl. 16:58

4 identicon

Engan veginn hægt að bera saman epli og appelsínur, félagi. Ljóst var strax af kosningaþátttöku hvernig þingfulltrúar skiptust. Þitt hlutverk verður að þroska kosningavitund Akureyringa. kv gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 30.11.2010 kl. 17:02

5 Smámynd: Benedikt V. Warén

Óskar, ekki annað en það, að þetta sýnir hvað er í vændum ef landið verður gert að einu kjördæmi.  Reykjavík ræður allri röðun á lista.  Rödd landsbyggðarinnar verður kæfð.  Þaðan koma peningarnir til að reka borgina að stórum hluta, hvort sem okkur landsbyggðarmönnum líkar það betur eða verr.  Veit að þér er það mjög þóknanlegt, enda löngu fúinn land.

Benedikt V. Warén, 30.11.2010 kl. 17:11

6 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Sama hvað verður sagt eða reynt..niðurstaðan eru 25 einstaklingar sem eru þekktir vegna þess að þeir hafa verið áberandi í fjölmiðlum... og ef mönnum finnst í lagi að  þeir komi af Lækjartorgi og næsta nágrenni þá er það þeirra skoðun.

Jón Ingi Cæsarsson, 30.11.2010 kl. 17:12

7 identicon

Voðalega er þetta fáranleg umræða fullorðins fólks.  Ég er Reykvíkingur en meirihluti þeirra sem ég kaus var fólk af landsbyggðinni.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 30.11.2010 kl. 18:30

8 identicon

Ég kaus einstaklinga, mér er nákvæmlega sama hvar þeir búa.  Ég telst vera landsbyggðarmaður.  Og að segja að rödd landsbyggðarinnar verði kæfð?.  Ef landið verður að einu kjördæmi þá raða flokkar líklega á lista?.. Eða hvað.  Verður þá þess ekki gætt að jafnræði ríki?.  Eða eigum við bara að dæma þetta allt ómögulegt og ömurlegt í fánýtri neikvæðni?. 

Reynir Stefánsson (IP-tala skráð) 30.11.2010 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband