VG út og suður..upp og niður og allt um kring.

 

Mikil ólga er í grasrót Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs vegna þess að sífellt verði ljósara að Ísland sé ekki í einföldum aðildarviðræðum við Evrópusambandið heldur í aðlögunarferli

Ég held að flestir séu farnir að sjá að VG er óþolandi í samstarfi. Gengur á með endalausum upphrópunum, mál eru tafin og drepin í dróma vegna torfkofasjónarmiða, hópurinn er eins og vel var orðað, kattahópur í stjórnlausri leit að ágreiningi og leiðindum.

Líklega verður að fara að huga að öðru stjórnarmynstri sem getur fleytt okkur inn í framtíðina. Það er ljóst að með VG í ríkisstjórn verður slíkt nánast óframkvæmanlegt. Ef viðhorf stjórarflokks er að drepa eigi atvinnulíf í Stalíníniska miðstjórn og erlendar fjárfestingar nánast bannaðar er slíkt samstarf ekki á vetur setjandi.

Margir þingmenn VG hafa unnið af miklum heilindum og dugnaði að endurreisn Íslands meðan fámennur hópur innan þeirra raða gerir allt sem í þeirra valdi stendur að koma hér á 19. aldar þjóðfélagi.


mbl.is Ólga í grasrót vinstri-grænna vegna aðlögunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Stundum er betra að fara út og suður en norður og niður! Það er það sem Samfylkingin gerir, hún fer norður og niður. Áherslan á ESB viðræðurnar gengur fyrir öllu hjá þeim og allt annað gleymist. Skjaldborgin heldur fjölskildunum í gíslingu og er þeim leyft að blæða út.

Gunnar Heiðarsson, 23.8.2010 kl. 08:24

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Gunnar...ertu nokkuð blindur. Legg til að þú kíkir á hvað allir hagfræðingar og stofnanir efnhagslífsins segja um greinilegan bata og allt á réttri leið. En það gæti strandað á lappadrætti VG sem vill ekki nokkurn skapaðan hlut til nýsköpunar og framtíðar.

Jón Ingi Cæsarsson, 23.8.2010 kl. 09:18

3 Smámynd: Óðinn Þórisson

"Líklega verður að fara að huga að öðru stjórnarmynstri sem getur fleytt okkur inn í framtíðina."

Þarna er ég alveg sammála þér - EN spurningin er hvaða stjórnmálaflokkar eiga að mynda nýja ríkisstjórn ?  t.d  framsókn/samfylking/sjálfstæðisflokkur

Það er algjört forgangsmál til að koma hjólum atvinnulífsins aftur af stað er að vg fari úr ríkisstjórn - stjórnmálaflokkur þar sem framfarir/framkvæmdir/framleiðsla/einkaframtak eru bannorð á EKKI að vera að stjórna landinu -

Óðinn Þórisson, 23.8.2010 kl. 09:40

4 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Jón.... ertu strútur?

Taktu upp höfuðið og líttu í kringum þig.

Eina ástæðan fyrir mælanlegum bata er að EKKERT hefur verið gert og afleiðingar hruns s.s. gjaldþrot, nauðungaruppboð fall húsnæðismarkaðarins, atvinnuleysi, afneitun og uppbygging þar á eftir.... EKKERT af þessi hefur fengið að ganga sinn gang.

Svipað og í sorgarferlinu að þá þarf kerfið að ganga í gegnum nokkur skref.

Hér eru enn allir í afneitun og því erum við í raun enn á byrjunarreit.

WC eru síðan í réttlætingarherferð þar sem við viljum "velja" hverjir lifa og deyja og hverjir fá náðun stjórnar .... nákvæmlega það sem gerðist í Sovét 1990. Kommarnir tóku aftur yfir en það var "attílæ" þar sem nú  hétu þeir "lýðræðishreyfing"...

Hér er aðeins ein lausn á þingmannavandamálinu.

Algjör endurnýjun, þ.e.a.s. á flokkunum OG fólkinu

Óskar Guðmundsson, 23.8.2010 kl. 11:02

5 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Óskar.. er skynsamlegt að halda fram því að ekkert hafi verið gert..ætli STRÚTURINN standi þér ekki nær.

Jón Ingi Cæsarsson, 23.8.2010 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 812348

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband