Flótti brostinn á í stjórnarliðinu.

Theo­dóra S. Þor­steins­dótt­ir, odd­viti Bjartr­ar framtíðar í Kópa­vogi og þingmaður flokks­ins fyr­ir Suðvest­ur­kjör­dæmi, hef­ur ákveðið að segja af sér þing­mennsku um næstu ára­mót. Þetta kem­ur fram í ít­ar­legu viðtali við hana í Kópa­vogs­blaðinu sem birt­ist í dag./

Flótti er að bresta á í þingmannaliði stjórnarflokkanna.

Þingmaður Bjartrar ætlar að halda áfram í bæjarmálum en hætta á þingi.

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins er nú orðaður við framboð í Reykjavík og hefur ekki neitað að það komi til greina.

Reyndar búinn að vera í fýlu, fékk ekki ráðherrastól.

Sumum þykir það nokkuð undarlegt að bæjarfulltrúi Bjartrar í Kópavogi ætli að setja bæjarmálin í forgang, eins og mál standa núna er afar ólíklegt að Björt framtíð nái nokkrum árangri á þeim vettvangi að mælast með pilsnerfylgi. Kannski fær hún gott sæti hjá öðrum flokki fyrir góða samvinnu síðastliðin ár í samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi. Það væri auðvitað góð skýring á þeessu.

En áhugavert er að skoða hvernig þessi meirihlutaþingmaður skilur við þingið og þingstörfin.

Nennir ekki að vera þar lengur af því það er ekkert að gerast og hún ræður engu.

Bjóst hún við öðru þegar Björt framtíð gekk í björg Valhallar við stjórnarmyndum.

Auðvitað áttu þau engu að ráða.

Björt framtíð er bara nytsöm hækja til þess að hafa meirihluta á þingi og bæjarfulltrúinn fékk ekki ráðherrasæti til að halda henni góðri.


mbl.is Theodóra segir af sér þingmennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. ágúst 2017

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband