Guðni kominn upp að vegg í flokknum. Óuppslýstir ungliðar.

Helsti samstarfsmaður Guðna Ágústssonar framdi pólitíkst sjálfsmorð í vikunni. Þá stendur karlinn orðið einn í þingflokknum. Nú reynir hann að bjarga pólitísku skinni með að söðla um og það er skiljanlegt.

Aftur á móti finnst mér málflutningur Framsóknarmanna lýsa hugleysi þar sem þeir vilja fara í þjóðaratkvæði með aðildarviðræður. Slíkt er auðvitað rakinn óþarfi og þegar stjórnmála og embættismenn hafa skilgreint samningsmarkmið, klárað viðræðu með tillögu að niðurstöðu, á þeim tímapunkti fara menn í þjóðaratkvæði eftir ítarlega kynningu.

Svo er nokkuð kjánaleg yfirlýsing ungra framsóknarmanna í einu innlegginu í þessari frétt að Samfylkingin hafi haldið einar kosningar og svo ekki meir. Slíkt lýsir ótrúlegu þekkingarleysi á því sem Samfylkingin hefur verið að gera síðustu ár.

 Innan raða Samfylkingarinnar eru þeir sem mest hafa pælt í þessum málum undanfarin ár og flokkurinn gaf út bók fyrir nokkrum árum um þetta mál sérstaklega. "Ísland í Evrópu , greining á saminingsmarkmiðum Íslands við hugsanlega aðildarumsókn að ESB". Sú ágæta bók var gefin út 2001 skrifuð að Eiríki Bergmann Einarssyni.

Ég gat ekki lagt inn upplýsingar á þessa ágætu síðu til að fræða ungframmarana því þeir leyfa ekki comment frekar en þingmennirnir þeirra. 

Hér er slóð á félag ungliða frammara sem heitir því stórfyndna nafni Alfreð.  

http://fufalfred.blog.is/blog/fufalfred/entry/712270/


mbl.is Guðni vill skoða ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Já, er ekki meira upplýsingaflæði meðal ungra framsóknarmanna en þetta? - Það er annars merkilegt.- Og þó.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 15.11.2008 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 818038

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband