Heimsveldi á staurfótum.

Miklar hetjur bretar. Forsætisráðherrann sem kennir sig við jafnaðarmennsku telur það sæma sér og þjóð sinni að ráðast á bræðraþjóð í vanda. Íslendingar fá enn einu sinni að kenna á fávisku breta því þrisvar sinnum áður hafa  þeir talið sér það sæmandi að beita okkur hervaldi, vopnalausa þjóðina.

Heimsveldið gamla er á staurfótum og það eina sem þora er að ráðast að vopnlausri smáþjóð í vanda...sorglegur karakter.

Nú þegar hópur ógætinna og gráðugra fésýslumanna hafa komið þjóðinni í vanda kemur fulltrúi breska heimsveldisins og sparkar í liggjandi þjóð. Það lýsir innræti þessa sorglega manns sem reynir með þessu að beina athygli landa sinna frá dapurri stöðu sinni í stjórnmálum.

Gordon Brown er því miður svartur blettur á sóma jafnaðarmanna og ætti að hverfa úr embætti sem fyrst. Það er betra að semja við stjórnmálamenn þar í landi sem hægt er að kalla heiðarlega. Það sem hann gerði er bresku þjóðinni til ævarandi skammar.


mbl.is „Sparkað í liggjandi (Ís)land"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Síðan hvenær eru Bretar svona mikil bræðraþjóð okkar?

Ég kannast bara ekkert við það. Yfirgangur á fiskimiðum árhundruðum saman og illa þokkaðir í viðskiptum á miðöldum og fram eftir öllu og síðan þorskastríðin.

Seinni heimsstyrjöldin er það eina sem þeirra hafa sér til málsbóta - virkilega það eina!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 10.10.2008 kl. 22:36

2 Smámynd: Blaðamenn Foldarinnar

Við vitum ekki betur en Brown sé jafn mikill jafnaðarmaður og Jón Ingi Cæsarson og aðrir samfylkingarpratar, að því undanskyldu, að Brown hefur ekki ennþá verið í ríkisstjórn eða bæjarstjórn með íhaldinu.

Svo megum við ekki gleyma, að jafnaðarmenn eru engir jafnaðarmenn, aðeins íhaldshækjur og götóttar brækur.

-ALy

Blaðamenn Foldarinnar, 10.10.2008 kl. 22:44

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Bretar eru ekki, hafa aldrei og munu aldrei vera bræðraþjóð íslendinga.. það var þangað sem við sóttum þræla... 

Óskar Þorkelsson, 10.10.2008 kl. 23:07

4 identicon

Sannarlega ömurleg framkoma forsætisráðherra Bretlands við okkur Íslendinga.  Er ekki alveg sáttur við hvernig íslensk stjórnvöld hafa brugðist við árásum þessa manns á okkur.  Geir er mikið prúðmenni og kurteis og vill ábyggilega ekki fara í átök við bretana en nú er eiginlega nóg komið.  Það er búið að rústa mannorði okkar þarna úti í hinum stóra heimi og óvíst hversu langan tíma það tekur að vinna það upp aftur.        

Reynir Stefánsson (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 00:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband