Mannúð og mildi - já takk.

Það get­ur verið að málið leys­ist á næstu dög­um ef frum­varpið fer í gegn­um Alþingi,“ seg­ir Magnús Davíð Norðdahl lögmaður fimm manna fjöl­skyldu frá Gana. Hann vís­ar til þess sam­komu­lags sem náðist í gær um lok þingstarfa og á dag­skrá verða nokk­ur frum­vörp í dag meðal ann­ars frum­varp um breyt­ing­ar á út­lend­inga­lög­um.

Það er sorglegt að þurfa horfa upp á það trekk í trekk að verið sé að henda litlum börnum út á gaddinn.

Vafalaust geta möppurdýrin fundið greinar og reglur í möppunum sínum sem hægt er að nota í þannig tilfellum.

En viljum við að þjóðfélagið okkar sé þannig, viljum við ekki að mannúð og mildi komi fyrst, regluverk og möppur seinna, þegar þannig stendur á ?

Þegar börn eiga í hlut á hreinlega að láta það ráða niðurstöðum slíkra mála.

Það er leitt að sjá suma stjórnmálaflokka viðhafa sömu rörsýn og varðhundar regluverksins.

Viljum við ekki breyta þjóðfélaginu okkar í átt til mannúðar og mildi ?

 


mbl.is Krefjast frestunar réttaráhrifa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Börn eru eðli máls samkvæmt, viðhengi foreldra/forráðamanna.  Það er bara absúrd að fjalla um mál hælisleytenda á þann hátt sem gert hefur verið.  Mannúðin og mildin eru oft orsakir afleiðinga sem ekki sjást fyrir, samanber afgreiðslu Alþingis á hælisumsókn albananna á síðasta ári.  Fyrst þarf að búa í haginn svo má byrja að fjölga umsækjendum.  Í dag eru aðstæður hælisleytenda óboðlegar. Þá er ekki rétt að pikka eina eða 2 fjölskyldur út úr og veita þeim sérmeðferð í nafni mannúðar og mildi þeirra sem enga ábyrgð bera, hvorki pólitíska eða fjárhagslega.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 26.9.2017 kl. 14:24

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

MÖRG ÞESSI BÖRN  eru með skegg og annsi dimmrödduð- en væri ekki gott að góðmenni her ættleiddu nokkur eintök- um tvítugt ?

Erla Magna Alexandersdóttir, 26.9.2017 kl. 20:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 812348

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband