Skammtímahugsun - umhverfispjöll.

„Þetta er mál sem er búið að hanga yfir sam­fé­lag­inu hérna eins og draug­ur í meira en ára­tug,“ seg­ir Pálína Ax­els­dótt­ir Njarðvík úr sam­tök­un­um Ung­sól sem berj­ast gegn Hvamms­virkj­un í Þjórsá.

Hvammsvirkjun er enn eitt dæmið þar sem hagsmunaaðilar og fjárfestar ráða för.

Virkjun á þessum stað eru gróf umhverfisspöll og hafa mikil áhrif á nærumhverfið og jafnvel stórskemma mannlíf og samstöðu.

Sveitastjórnir verða að velja hvort þær ætla að láta undan fjárfestum, stóriðjumönnum og orkufyrirtækum sem horfa til eigin gróða fyrst og fremst.

Til lengri tíma eru það heimamenn og umhverfið sem eiga njóta eigin landgæða og selja þau ekki í hendur annarra. Það er ekki séð að þessi virkjun skili heimamönnum nokkrum sköpuðum hlut.

Sveitarstjórnir sem setja aðra hagsmuni en hagsmuni heimabyggðar í öndvegi eiga ekki rétt á sér og hljóta að verða settar af í næstu kosningum.

Hvammsvirkunarmálið er gott dæmi um hvert við ætlum að stefna í framtíðinni, ætlum við að setja hagsmunaaðila og gróðaöflin í öndvegi eða ætlum við að setja mannlíf og umhverfi heimabyggðar í fyrsta sæti ?

Verður fróðlegt að sjá þarna.

 

 


mbl.is Hangir yfir samfélaginu eins og draugur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband