Skrópagemlingur á Alþingi.

Samkvæmt vef Alþingis er Sigmundur Davíð eini þingmaðurinn sem hefur ekki tekið þátt í neinum atkvæðagreiðslum eða öðrum þingstörfum frá því að Alþingi kom aftur saman eftir kosningar 29. október síðastliðinn.

Samvæmt fréttum hefur fyrrum forsætisráðherra verið að mestu fjarverandi frá Alþingi síðan í apríl og alveg síðan í október.

Líklega hefur hann fengið á milli 7 og 8 milljónir í laun fyrir þann tíma.

Vinnuveitandi hans, íslenska þjóðin þarf að fá upplýsingar af hverju fyrrum ráðherra stundar skipulögð vinnusvik mánuðum saman.

Það væri búið að reka starfsmann sem svona hagaði sér á vinnumarkaði en ekki þingmann.

Þeir virðast hafa leyfi til vinnusvika án afleiðinga.

Það væri rétt að þessi þingmaður segi af sér þingmennsku og hleypi einverjum að sem vill stunda vinnu með eðlilegum hætti.

Það verður fróðlegt að fylgast með hversu lengi þessi framsóknarfýla mun standa hjá SDG.

Og enn ræðst óvinurinn að honum úr launsátri, fréttamenn skilja ekki að SDG vill bara fá spurningar sem hann velur sjálfur.

Er þetta alveg í lagi ?

Kannski bara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Væri ekki skynsamlegra Jón Ingi fyrir þig sem framámaður í Samfylkingunni að einbeita þér að vandamálum þíns flokks sem var svo gjörsamlega hafnað af okkur kjósendum í síðustu kosningum heldur en að vera að agnúast út á stjórnmálafólk annara flokka? Ef það er einhver minnsta vitglóra í ykkur samfylkingarfólki þé færi ykkur betur í ljósi stöðu ykkar í dag að sýna aumýkt ef þið viljið eiga upp á pallborðið aftur.  

Hrossabrestur, 17.12.2016 kl. 22:06

2 identicon

Hvað eru hinir þingmennirnir búnir að vera að gera, þessir sem mættu?

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 18.12.2016 kl. 01:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband