Hverjir flýja sæluríki Sigmundar og af hverju ?

Útlit er fyr­ir að þetta ár verði ár eins mesta brott­flutn­ings ís­lenskra rík­is­borg­ara á síðari tím­um.

 

Forsætisráðherra hefur verið duglegur við að halda því fram að hér sé allt í lukkunnar velstandi og smjör drjúpi af hverju strái.

En samt flykkist fólk úr landi, yfirgefur meint sæluríki forsætisráðherra.

En hverjir eru það sem fara og af hverju.

Samkvæmt upplýsingum viðkomandi stofnana er það ekki vitað, hverjir eru að fara.

Sumir halda því fram að þetta sé atgerfisflótti ungs fólks. Það væri mjög alvarlegt fyrir þjóðfélagið.

En af hverju fer fólk frá sæluríkinu ?

Gæti það verið af því í sæluríkinu eru hæstu vextir á byggðu bóli ?

Gæti það verið af því stjórnarherrarnir boða óbreytt ástand í gjaldmiðilsmálum ?

Gæti það verið vegna einangrunarstefnu stjórnvalda ?

Gæti það verið af því laun eru hér umtalsvert lægri en í nágrannalöndum ?

Gæti það verið vegna misskiptingar og óréttlisstefnu stjórnvalda ?

Gæti það verið af því stefna stjórnvalda miðar að því að gera þá ríku ríkari og þá fátæku fátækari.

Gæti það verið vegna hnignandi og fjársvelts heilbrigðiskerfis ?

Það er margt sem kemur til greina, ekki skortir ástæður í sæluríki Sigmundar.

Flóttamannastraumurinn í heiminum er ekki eingöngu frá suðri til norðurs heldur einnig frá norðri til suðurs í okkar tilfelli.

 


mbl.is Fjöldi Íslendinga flytur úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Er þetta ekki tapaða fylgi Samfylkingarinnar.

Helga Kristjánsdóttir, 11.11.2015 kl. 18:12

2 Smámynd: Hörður Halldórsson

Allt að gerast allt á uppleið nema kannski í launaumslaginu hjá sumum.

Hörður Halldórsson, 11.11.2015 kl. 20:38

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Eins og kemur fram hér að ofan. þá liggur það fyrir að Samfylkingin flýr land.Vonandi má ekki eiga von á henni til baka.

Sigurgeir Jónsson, 11.11.2015 kl. 21:38

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

En trúlega má eiga von á Samfylkingunni til baka í formi hælisleitenda.Það verur ekki auðvelt fyrir hana að fá landvístarleifi í útrásinni.

Sigurgeir Jónsson, 11.11.2015 kl. 21:41

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Hvað sem líður hægri eða vinstri þá erum við í vondum málum til framtíðar ef ekki verður stöðvaður þessi landflótti ungviðis okkar. Stjórnkerfið er band ónýtt byggt upp fyrir fáa flokksgæðinga sem arðræna þjóðina.

Sigurður Haraldsson, 13.11.2015 kl. 01:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 818054

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband