Stendur Framsókn í lappirnar ?

Mik­il­vægt er að leysa úr þeirri stöðu sem stjórn fisk­veiða er í með ákvæði í stjórn­ar­skrá um þjóðar­eign á auðlind­um hafs­ins í kring­um landið. Þetta kom fram í máli Sig­mund­ar Davíðs Gunn­laugs­son­ar for­sæt­is­ráðherra á Alþingi í dag þar sem hann ræddi málið við Árna Pál Árna­son,

___________

Sjálfstæðisflokkurinn stendur öflugan vörð um eignarhald sægreifa á sjávarútvegsauðlindinni.

Framsóknarflokkurinn segist vilja þjóðareign á henni.

Fram að þessu hefur Framsókn ekki staðið í lappirnar gagnvart þeirri stefnu Sjálfstæðisflokksins og hefur stutt lækkun veiðleyfagjalda á útgerðir.

Þannig verður Framsókn nokkuð tvísaga í málinu, því ef þeir hefðu jafn mikinn áhuga á þjóðareign á sjávarútvegsauðlindir mundi hann varla styðja Sjálfstæðisflokkinn jafn afdráttarlaust og þegar lækka skal gjöld.

Gjöldin eru afnotagjald af þjóðareign og með lækka þau gjöld er verið að hafa fé af sameiginlegum sjóðum okkar allra með vondum afleiðingum.

Það reynir því á hvort Framsókn er virkilega að meina það að þeir styðji þjóðareign á auðlindinni.

Ef þeir styðja enn frekari lækkun á veiðileyfagjöldum og gera ekkert í að koma áfram sjávarútvegsfrumvarpi, þar sem þjóðareign er staðfest er ekkert að marka fagrar yfirlýsingar forsætisráðherra.


mbl.is Þjóðareign á auðlindum meginstefið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Þetta er leikrit hjá ríkisstjórninni.

Sveinn R. Pálsson, 24.2.2015 kl. 14:42

2 identicon

Engin hætta á að framsókn geri það. Vita ekki flestir hver á framsóknarflokkinn?
Spurningin er hinsvegar hvenær verði næstu kosningar. Það eru enn eftir tvö ár af kjörtímabíli þingsins, verði þing ekki rofið, sem maður vonar að forsjónin gefi þó fyrr en síðar. Við þurfum nefnilega að bera gæfu til að nota sömu aðferð á þingi hér og Svíþjóð hefur tekist að gera með systurflokk þeirra, Svíþjóðar-demókratana, að útiloka þá frá þátttöku í landsstjórninni. Lýðræðissinnaðar flokkar hér á landi ættu að geta það, allavega hefur það að mestu tekist í borgarstjórn Reykjavíkur. Einangrun svona fasistiskra fyrirbrigða er eiginlega lýðræðisleg nauðsyn og það verður sjálfstæðisflokknum til ævarandi skammar að hafa leitt þá til valda í landsstjórninni núna.

Donatello (IP-tala skráð) 24.2.2015 kl. 15:03

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jón Ingi. Einungis samstaða þjóðarinnar getur náð fram breytingum til bóta. Samstaða þjóðarinnar er valdamesta aðhaldsaflið. Það er að segja ef enginn nær að sundra því valdaafli með pólitískum áróðursblekkingum pólitískar valdafjölmiðla.

Fjölmargir telja sig vera að græða á að vera á móti/með þessum eða hinum flokknum. Ja, þvílík vonlaus samskiptafornaldar-fásinna!

Ef fólk skilur ekki alvöruna sem er í gangi á Íslandi og víðar í bankarændum og gjaldeyris-innistæðulausum heiminum, þá erum við öll jafn vel/illa gjaldfallin. Og í boði bankarændra blekkingarfjölmiðlanna Ómars-sviknu.

Hver og einn skrifar sína ferilssögu og eftirmæli, með sinni heiðarlegu og fórnandi langtíma-brennandi hugsjón í verki. Með bæði tapi og sigrum sínum í misvel eða illalukkaðri hugsjónabaráttunni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 24.2.2015 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 812348

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband