Framsókn 9%. Ríkisstjórnin fellur. Stjórnarslit ?

Stuðning­ur við rík­is­stjórn­ina mæld­ist nú 34,8% en mæld­ist 37,3% í síðustu mæl­ingu (sem lauk þann 16. des­em­ber s.l.) og 36,4% í nóv­em­ber s.l. (lauk 25. nóv­em­ber).

_________________

Framsóknarflokkurinn er orðinn minnstur allra flokka á þingi.

9% kjósenda mundu setja x við B

Ríkisstjórnin  er í sögulegu lágmarki hjá MMR í þessari könnun, 34 % styðja stjórnina.

Sjálfstæðisflokkurinn tapar 2% frá síðustu könnun.

Annað er nokkuð óbreytt, Píratar og VG bæta þó við sig sitt hvoru prósentinu.

Stjórnarflokkarnir hafa samkvæmt þessari könnun 36% fylgi sem er hrun frá kosningum 2013.  Framsóknarflokkurinn er hinn stóri tapari á þeim vængnum.

Það er augljóst að málflutningur Framsóknarflokksins geðjast kjósendum alls ekki og flokkurinn algjörlega rúinn trausti.

Hvað ætti að gefa þessu samstarfi langan tíma ?

Þrjá mánuði ? Hálft ár ?

Samkvæmt því sem formenn þessara flokka sögðu um fylgistölur í könnunum á síðasta kjörtímabili ættu þeir að slíta þessu samstarfi strax.

En valdastólarnir eru volgir og langt síðan þeir sögðu þetta.

 

 

 


mbl.is Minni stuðningur við ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Kosningar fara fram hér á landi á fjögurra ára fresti, nema ef óleysanlegur ágreiningur komi upp milli stjórnarflokka. Ef haga ætti stjórnun landsins eftir skoðanakönnunum yrðu kosningar sennilega á vikufresti. Undarlegt, þegar fólk telur að ríkisstjórn sé fallin, ef skoðanakönnun mælir minna fylgi en áður. Gildir þar einu hvaða stjórn er við völd.

Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 26.1.2015 kl. 12:59

2 identicon

Alltaf sami spaugarinn. Færðu aldrei smá kjánahroll? Síðasta ríkisstjórn fór niður í 28% fylgi á sínum tíma.Það sem skilur á milli núvrandi stjórnar og þeirrar síðustu, er að hún varð minnihlutastjórn án stuðnings, löngu, löngu áður en kjörtímabilinu lauk. Þar af leiðandi kom hún engum umdeildum málum í gegn. Hún hefði átt áð vera búin að segja af sér og boða til nýrra kosninga löngu fyrir lok kjörtímabilsins. Nei "Fyrsta Tæra Norræna Velferðarstjórnin" varð að tóra, hvað sem raulaði og tautaði. Er ekki annars gott að frétta? Boltinn á eftir. ÁfRAM íSLAND.

p.s. þú hefur eflaust engan áhuga á "Víglundar málinu" eða hvað??

Magnús (IP-tala skráð) 26.1.2015 kl. 15:30

3 Smámynd: Rafn Guðmundsson

ég á ekki von á kostningum því miður en gott að sjá framsókn í 9% fylgi.  vonandi verður það bara lægra næst.

Rafn Guðmundsson, 26.1.2015 kl. 17:40

4 identicon

Miðað við hvernig mál hafa þróast og hvernig framkoma framsóknarmanna hefur verið á hinum pólitíska sviði, þar sem flokkurinn hefur tekið sér stöðu við hlið ógeðfelldustu rasista og fasistaflokka Evrópu, þá ætti sjálfstæðisflokkurinn, ef hann hefur einhvern metnað til að bera, að taka sér tak og vísa þeim úr ríkisstjórn. Líklega hefur Bjarni formaður þó ekki bein í nefinu til þess. Hann ætti síðan að óska eftir stuðningi við eða þátttöku Samfylkingar og Bjartrar framtíðar, sem augljóslega eru í góðum tengslum við meirihluta þjóðarinnar, allavega þess hluta sem er undir sjötugu, við bráðabirgðaríkisstjórn, sem sæti til kosninga, sem haldnar yrðu í júní n.k. Síðan ættu íslenskir stjórnmálamenn að sýna sama manndóm og sænskir kollegar þeirra og útiloka framsókn frá þátttöku og áhrifum í pólitík. Það er ekkert sem bannar það. Frumskilyrði sósíaldemokratísku flokkana fyrir slíkum stuðningi við eða þátttöku í bráðabirgðastjórn ætti svo að vera að fram færi a) þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við EU og b) að fyrirliggjandi frumvarp til nýrrar stjórnarskrár yrði afgreitt og þar yrði m.a. tryggður jafn atkvæðisréttur allra landsmanna, sem er brýnt hagsmunamál og hafa ber þar í huga að ÖSE hefur gert alvarlegar athugasemdir við kosningalög og reglur hérlendis og misvægi atkvæða.

Móri (IP-tala skráð) 26.1.2015 kl. 18:56

5 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Magnús, jú ég fæ stundum kjánahroll, sérstaklega þegar ákveðnir leiðtogar Framsóknarflokksins tjá sig.

Og þetta með boltann var fróm ósk en árangurinn í anda stjórnarflokkanna.

Jón Ingi Cæsarsson, 26.1.2015 kl. 21:49

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Boltinn í Quatar fór á svipaða leið og "Skjaldborgin". Miklar væntingar, en slakur árangur, því miður. Þó reyndu allir sitt besta. Á stundum er það hins vegar ekki nóg og því fer sem fer, sama hver á í hlut.

Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 26.1.2015 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 818070

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband