Hvað rekur formann Sjálfstæðisflokksins á svikabraut ?

 

Afturköllun ESB-aðildarumsóknarinnar á eftir að reynast Sjálfstæðisflokknum þyngri í skauti en Framsóknarflokknum en fyrrnefndi flokkurinn sendi kjósendum misvísandi skilaboð um hvort efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er mat tveggja stjórnmálafræðinga.

_______________

Ég hélt að formaður Sjálfstæðisflokkins væri vandur að virðingu sinni og maður orða sinna.

Það er einhver misskilningur því sú ferð sem hann hefur nú lagt í undir stjórn Framsóknarflokksins vekur furðu.

Þess vegna spyrja margir, hvað rekur formanninn út á þessa hálu braut ?

Eina sem er sýnilegt er þjónkun við afturhald Framsóknar og væntanlega hefur Framsóknarflokkurinn skilyrt stjórnarsamstarf með þessum hætti.

Kannski eru völd og ráðherrastólar þess virði að svíkja og skemma orðspor flokks og formanns ?

Eða ræður formaður Sjálfstæðisflokksins nákvæmlega engu í þessu ferli ?

Ein og Þorgerður Katrín sagði svo smekklega. " Sjálfstæðisflokkurinn þarf ekki að verða eins og Framsóknarflokkurinn þó flokkarnir séu í samstarfi "

En það er nákvæmlega þangað sem formaður flokksins er að stýra atburðarásinni með viljalausan þingflokkinn í vasanum. 


mbl.is Erfiðara fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég hélt að formaður Sjálfstæðisflokkins væri vandur að virðingu sinni og maður orða sinna.

Það voru þín mistök (og fleiri) að halda það. Alveg eins og það voru mistök margra að treysta síðustu ríkisstjórn.

P.S. Vitnar í sjónvarpsdómara í hæfileikakeppni skemmtikrafta sem einhverja marktæka heimild um eitthvað...  Really?

Guðmundur Ásgeirsson, 24.2.2014 kl. 08:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 812348

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband