Óttarlega er þetta þunnur þrettándi.

„Það er að verða bláköld staðreynd að mjög lítill munur er á þessum tveimur flokkum, Samfylkingunni og Vinstri grænum, og spurning hvort sameining þeirra liggi í loftinu. Í þeim málaflokkum þar sem Vinstri grænir höfðu sérstöðu og trúverðugleika til að standa á þeirri sérstöðu þá hefur forystan gefið eftir,“ segir Ásmundur Einar Daðason þingmaður um þróunina hjá fyrrum flokki sínum, VG. 

Stjórnmálasýn Ásmundar Einars er álíka djúp og sýn hans á Evrópumál.

Einföld og grunn.

VG og Samfylkingin eru afar ólíkir flokkar og grunnhugmyndafræði þeirra ólík. Samfylkingin byggir á socialdemókratiskri hugmyndafræði sem allir sem hafa verið í stjórnmálum þekkja.

VG byggir sína sýn á socialisma og þjóðernishyggju að hluta og alþjóðleg sýn þeirra er takmörkuð við Ísland og það sem íslenskt er. Sem dæmi telja þeir að krónan sé samofin þjóðinni og í hana eigi að halda, svipað og þeir eru algjörlega á móti ESB aðild þó ráðamenn þar hafi þó haft þann þroska að láta þjóðinni það eftir að ráða framtíð sinni sjálf.

Síðan eiga þessir flokkar ýmislegt sameiginlegt eins og allir flokkar á Íslandi, meira að segja Sjálfstæðisflokkurinn.

En auðvitað eru einstaklingar í öllum flokkum sem geta auðveldlega verið annarsstaðar vegna sinnar persónulegu sýnar á pólitík og málefni. Það eru ýmir í VG sem eiga auðveldlega samleið með Samfylkingu og aðrir ekki. Þannig er það bara.

Ég held satt að segja að Ásmundur Einar ætti að leggja annað fyrir sig en greiningu á stjórnmálaflokkum og stjórnmálamönnum...svona mín skoðun.


mbl.is VG og Samfylking geti sameinast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jón Ingi. Samfylking og VG eru þunnir þrettándar. Þú ert andvígur allri gagnrýni á einræðisvinnubrögð og valdníðslu Samfylkingar og hluta VG. Það segir mest um þig og þína einsleitu og þröngu sýn á málin. Lýðræði er orð í íslenskum orðabókum, og ekki væri verra að sumir myndu kynna sér hvað það orð þýðir.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 30.12.2011 kl. 12:14

2 identicon

þar negldirðu naglann beint á hausinn Jón Ingi. Samspilling + Vg er ákaflega  þunnur þrettándi.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 12:42

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Enda er þetta einfaldur og grunnur drengur.

Sleggjan og Hvellurinn, 30.12.2011 kl. 14:32

4 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Anna! Kannski Sleggjan og Hvellurinn geti lamið þetta orð inn í hausinn á Jóni Inga með aðstoð Kristjáns!.

Eyjólfur G Svavarsson, 31.12.2011 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 812346

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband