2.8.2017 | 13:48
Reykjavík og Akureyri standa sig best, íhaldsbæirnir skussar.
Þetta er náttúrulega gríðarleg hækkun eða fjölgun á biðlistum og það liggur alveg fyrir að borgin er ekki að ráða við þetta. Áætlanir borgarinnar ganga ekki upp um að fjölga þessum íbúðum um 100 á ári og það verður að grípa til róttækra aðgerða segir Guðfinna. En hvaða aðgerða er hægt að grípa til þegar þenslan á fasteignamarkaðnum er eins og hún er? Guðfinna segir að Félagsbústaðir verði að byggja. Við í Framsóknar- og flugvallarvinum höfum bent á það allt kjörtímabilið að Félagsbústaðir þyrftu að byggja sjálfir. Þeir eru ekki að byggja almennar félagslegar leiguíbúðir, en þeir eru þó að byggja fyrir sértæk búsetuúrræði sem er annað segir Guðfinna.
( ruv.is )
Mikið hefur verið rætt um stöðu mála með félaglegar íbúðir og leiguíbúðir fyrir aldraða og fatlaða á höfðuborgarsvæðinu og víðar.
Minnihlutinn í Reykjavík hefur gagnrýnt borgaryfirvöld fyrir að standa sig ekki og meirihlutinn viðurkennir að betur mætti gera.
Í þessu samhengi er áhugavert að skoða hvernig íhaldsbæir á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni eru að standa sig.
Akureyri og Reykjavík eru þau tvö sveitarfélög á landinu sem skera sig mest úr og hafa hæst hlutfall slíkra úrræða. Standa sig langbest.
Flest hægri sveitarfélögin eru að standa sig mjög illa þegar kemur að því að bjóða upp á úrræði fyrir þessa hópa.
Íhaldið á þessum stöðum er ekki að standa sig. Seltjarnarnes 3,6%, Mosfellsbær 4,5%, Garðabær 2,3%, þetta er náttúrulega ekki í lagi.
Það er ekki undarlegt að vandinn aukist í Reykjavík. Fólk sem þarf á þessum úrræðum að halda eiga enga möguleika í öðrum sveitarfélögum á svæðinu, þar eru menn bara að grilla og græða.
Ef þessi sveitarfélög væru ekki nema í slöku meðallagi væri vandinn að stórum hluta úr sögunni. Ef þeir væru að leggja jafn mikið í málaflokkinn og Akureyri og Reykjavík þýddi það 400-500 íbúðir í viðbót á svæðið.
Af hverju er menn að skamma þá sem best gera en nefna ekki skussana ?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.8.2017 | 09:40
Mun Sjálfstæðisflokkurinn sveigja öryggisreglur fyrir Elliða ?
Þau eru sterk hagsmunaöfl Sjálfstæðisflokksins.
Í fyrra studdi flokkurinn þöggun lögreglustjórans í kynferðisafbrotamálum enda vildu Elliði og hagmunaöfl flokksins það.
Nú reynir aftur á, mun flokkurinn koma Elliða og hagsmunaöflum úthátíðar til aðstoða með að ógilda úrskurð eftirlitsstofnunar.
Það er líklegra en ekki, Sjálfstæðisflokkurinn og fulltrúar hans eru fyrst og fremst í hagsmunagæslu fyrir flokksmenn og hagsmuni þeirra.
En lengi má manninn reyna og kemur í ljós í dag.
Þá liggur það fyrir, flokksapparat Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að stinga Samgöngustofu í bakið og rökstyðja mál sitt með að ekki hafi verið sýnt fram á annað sjólag fyrir suðurströndinni en í Faxaflóa.
Langt er seilst til að tryggja hagsmuni flokksgæðinganna.
Stjórn og embættismenn Samgöngustofu hljóta að segja af sér eftir svona valdníðslu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 2. ágúst 2017
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 812348
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar