20.7.2017 | 21:29
Er það ekki óþolandi umhverfisráðherra ?
Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra segir gjörsamlega óþolandi að almenningur hafi ekki verið upplýstur strax um skólpmengunina í Reykjavík. Hún segir ekki gott að sveitarfélögin hafi eftirlit með eigin mengandi starfsemi. Hún ætlar að beita sér fyrir því á þingi að eftirlit heilbrigðisnefnda með mengandi starfsemi verði fært frá sveitarfélögum til ríkisins.
Umhverfisráðherra virðist illa upplýstur um ástand skolpmála á Íslandi. Hún virðist heldur ekki vita með hvaða hætti eftirliti er háttað um landið. Átta mig ekki alveg á hvað vinnst með því að færa þetta eftirlit til stofnunar í Reykjavík þegar heilbrigðisnefndir eru í öllum landhlutum og geta lítið gert annað en fylgjast með ástandi og tilkynna það. Ekkert sveitarfélag hefur haft bolmagn til að ráðast í svona risaframkvæmd nema höfðuðborgin og nú síðst átti að vinna þessi mál í Eyjafirði en það frestast um ófyrirséða framtíð, enn einu sinni.
Henni finnst alveg óþolandi að höfðuborgarbúum þar með talin hún sjálf hafi ekki fengið að vita af bilun í hreinsikerfi höfuðborgarinnar.
Undanfarinn hálfan mánuð hafa dunið á okkur fréttir um hræðilegt ástand við eina hreinsistöð í Reykjavík, alveg skelfilegt bara.
En enginn hefur af því nokkrar áhyggjur þó gumsið renni óhindrað í sjóinn við flest sveitarfélög landsins.
Maður hefði nú kannski haft trú á því að sjálfur umhverfisráðherrann nefndi það og hefði áhyggjur af öllum þeim kúk og eyrnapinnum sem gusast í sjóinn, vötnin og árnar við heimabyggðir allra landsmanna nema þeirra í sem búa við þann lúxus að hafa hreinsivirki, sem er höfðuðborgin og fáein önnur.
En kannski finnst umhverfisráðherranum engin ástæða til að hafa áhyggjur af því, hennar áhyggjur snúa bara að því sem gerðist tímabundið í hennar eigin bakgarði.
Það væri yndislegt ef t.d. eitthvað bitastætt kæmi frá umhverfisráðuneytinu í tengslum við mengun í Mývatni. Þar dregur ríkisvaldið lappirnar, en sveitarfélagið stendur sína pligt eins og framast er unnt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2017 | 10:19
Þjónn Sjálfstæðisflokksins má EKKI afneita krónunni.
Íslenska krónan er óútreiknanleg og leiðir til óstöðugleika. Þetta segir Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra í grein sem birt er í Fréttablaðinu í dag undir yfirskriftinni má fjármálaráðherra hafna krónunni?
Má fjármálaráðherra hafna krónunni spyr Bensi.
Svarið er einfalt, þessi fjármálaráðherra má ekki hafna krónunni.
Ástæðan er líka einföld, hann valdi að verða fjármálaráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins fyrir stólinn, skoðanir og stefna var seld fyrir slikk.
Fjármálaráðherrann Benedikt Jónannesson er þjónn BB og Sjálfstæðisflokksins og þess vegna er spurningin út í hött hjá BJ.
Auðvitað má þessi fjármálaráðherra ekki neita krónunni, hann er þjónn Sjálfstæðisflokksins sem hangir á krónunni eins og hundur á roði.
Benedikt: ber skylda til að hafna krónunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Bloggfærslur 20. júlí 2017
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 812348
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar